Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Kjartan Kjartansson skrifar 10. september 2026 09:44 Utanríkisráðherra á fundi utanríkismálanefndar um Evrópumál í vor. Vísir/Vilhelm Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanríkismálanefnd segja að utanríkisráðherra hafi ekki haft samráð við hana um bréf sem ráðherrann sendi Evrópusambandinu. Þeir krefjast nýs fundar með ráðherranum vegna þess.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði með utanríkismálanefnd Alþingis á mánudegi eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Meirihluti kjósenda hafnaði þar viðræðum. Ráðherrann sendi svo bréf til Helenu McEntee, utanríkisráðherra Írlands sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, á þriðjudag í þessari viku. Í bréfinu skrifaði Þorgerður Katrín meðal annars að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefðu ekki áhrif á stöðu aðildarumsóknar Íslands. Við þetta eru þingmenn Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknarflokks í utanríkismálanefnd Alþingis ósáttir. Í bréfi sem þeir sendu Pawel Bartoszek, formanni nefndarinnar, segja þeir að utanríkisráðherra hafi borið að ráðfæra sig við nefndina áður en hún gerði ESB grein fyrir afstöðu stjórnvalda eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Á fundinum með nefndinni 31. ágúst hafi ráðherrann sagt að engin ákvörðun um næstu skref hefði verið tekin og að hann skoðaði málið nánar. Fulltrúar minnihlutans segja að þeir hafi gert það skýrt að þeir vildu ræða frekar um möguleg viðbrögð stjórnvalda á vettvangi nefndarinnar. „Engu að síður ákvað utanríkisráðherra, án nokkurs samráðs við utanríkismálanefnd, að senda bréf til formanns ráðherraráðs Evrópusambandsins sem inniheldur ýmsar vafasamar fullyrðingar sem aldrei höfðu verið ræddar á vettvangi utanríkismálanefndar, m.a. um efni þjóðaratkvæðagreiðslunnar,“ segir í bréfi minnihlutans sem Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins birtir á Facebook-síðu sinni. Krefjast þingmennirnir fjórir í minnihlutanum í nefndinni þess að Þorgerður Katrín komi aftur á fund hennar til þess að ræða stöðuna sem komin sé upp. Deja vu enn og aftur Deilur komu einnig upp þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem er einn þeirra sem skrifar undir bréf minnihlutans nú, gerði Evrópusambandinu ljóst að ekki yrði haldið áfram með aðildarumsókn Íslands árið 2015. Þingsályktunartillaga um að draga umsóknina til baka var aldrei samþykkt á þingi. Þess í stað sendu Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, og síðar Sigmundur Davíð sjálfur bréf til æðstu ráðamanna Evrópusambandsins þar sem þeir ítrekuðu afstöðu ríkisstjórnar þeirra um að halda viðræðunum ekki áfram. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar nú leit ríkisstjórnin svo á að aðildarumsóknin hefði aldrei verið dregin formlega til baka og því væri hún enn í gildi. Það var jafnframt skilningur Evrópusambandsins. Stjórnarandstaðan fullyrti aftur á móti að viðræðunum hefði verið slitið og að leggja þyrfti fram nýja umsókn til þess að taka þær upp aftur. Fréttin hefur verið uppfærð.
Alþingi Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira