Innlent

Loka öllum síðunum vegna öryggisgalla

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Háskóli íslands
Háskóli íslands

Lokað hefur verið fyrir allar vefsíður Háskóla Íslands vegna öryggisgalla í PHP hugbúnaðarkerfi þeirra. Gallinn hefur áhrif á síður víðs vegar um heiminn.

Allar vefsíður Háskóla Íslands, þar á meðal Uglan, sem er innra kerfi nemenda og kennara, liggja niðri vegna lokunarinnar. Öryggisstofnanir víða í Evrópu hafa mælt með lokun kerfa sem byggja á PHP, þar á meðal CERT-IS á Íslandi.

Á vefsíðu CERT-IS segir að um sé að ræða tvo alvarlega veikleika í PHP sem geta leyft fjarkeyrslu kóða á vefþjónum án auðkenningar. Uppfærsla kom frá PHP-teyminu rétt fyrir klukkan tvö og eru allir sem byggja vefi sína á PHP hvattir til að uppfæra um leið og lagfæringin er birt.

Í frétt BBC segir að einnig hafi verið lokað tímabundið fyrir vefsíður finnskra og hollenskra stjórnvalda vegna gallans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×