Innherji

Góðar for­sendur fyrir því að verð­bólgan hjaðni „jafn­vel all­hratt“ á næstunni

Hörður Ægisson skrifar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun kynna fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar næstkomandi mánudagsmorgun.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun kynna fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar næstkomandi mánudagsmorgun. Anton Brink

Fjármálaráðherra þrætir enn fyrir að aukning í mældri verðbólgu stafi einkum af hækkun opinberra gjalda, sem seðlabankastjóri hefur sagt vera „staðreynd“, og segir þær fullyrðingar ekki eiga sér stoð í gögnum. Hann telur góðar forsendur fyrir því að verðbólgan geti hjaðnað „allhratt“ á næstunni og bendir á að það fáist varla staðist til lengdar að húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs hækki umfram aðra verðmælikvarða á íbúðamarkaði.


Tengdar fréttir

Þriðja vaxta­hækkunin í röð en sjá fram á hratt hjaðnandi verðbólgu á næsta ári

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur í takt við væntingar hækkað meginvexti bankans um 25 punkta, sem er núna komnir á sama stað og snemma árs í fyrra, enda þótt einn nefndarmaður hefði kosið óbreytta vexti. Yfirlýsing bankans ber með sér mildari tón en áður og bent er á að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða.

„Tókst að kynda undir verðbólgu­bálið“ og útséð um vaxtalækkanir á næstunni

Með skattkerfisbreytingum stjórnvalda um áramótin „tókst heldur betur að kynda undir verðbólgubálið“ en vísitala neysluverðs hækkaði margfalt meira í janúar en meðalspá greinenda gerði ráð fyrir. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa rokið upp og peningastefnunefnd Seðlabankans getur gert lítið annað en „legið á bæn og vonað það besta“, segja sérfræðingar ACRO.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×