JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar 17. ágúst 2026 07:31 Sumt skil ég vel en annað illa eða alls ekki. Ég skil til dæmis ágætlega þá bændur sem óttast um afkomu sína ef Íslendingar gerast aðilar að ESB. Sem gömlum sveitastrák þykir mér vænt um landbúnaðinn og meðan ég þarf enn að éta vil ég fá að bragða á íslensku lamakjöti annað slagið. Fari svo að JÁ-hliðin verði ofan á 29. ágúst og samningur náist, verður sá samningur að verða fyllilega viðunandi bæði fyrir bændur og fæðuöryggi landsmanna. Annars segi ég NEI þegar kemur að atkvæðagreiðslu um inngöngu. En að sjálfsögðu krossa ég við JÁ að þessu sinni. Maður þarf nefnilega að hafa einhvern grundvöll til að taka afstöðu. Og eitt af því sem ég á erfitt með að skilja er að hálf þjóðin skuli telja sjálfsagt að taka afstöðu án þess sjá nokkurn skapaðan hlut – og um leið svipta hinn helminginn réttinum til að ígrunda staðreyndir málsins þegar þær liggja fyrir. Mér hefur fundist snúið að skilja rökin en tvennt virðist standa upp úr: Annars vegar er fullyrt að allt liggi þegar ljóst fyrir og annaðhvort gleypum við regluverk ESB eins og það leggur sig eða étum það sem úti frýs. Gott og vel. Það kemur þá bara í ljós. Hitt atriðið er svo þessi merkilega hræðsla við að glata fullveldinu og þar með sjálfstæðinu. Slík fullyrðing felur beinlíni aðra fullyrðingu, sem sé þá að í Evrópusambandinu séu nú 27 ósjálfstæðar og ófullvalda þjóðir. Af einhverjum sökum finnst mér þetta ekki alveg fyllilega sannfærandi. Hitt er annað mál að þeir Íslendingar eru til sem hafa fyllstu ástæðu til að óttast inngöngu í ESB. Þetta er í flestum tilvikum það fólk sem á mest af peningum og hefur þar af leiðandi ágætlega efni á að reka stífan áróður. Maður getur hins vegar spurt sig hvers vegna svo mikil áhersla er lögð á að koma í veg fyrir samningaviðræður. Hvers vegna ekki að bíða eftir samningnum sjálfum og snúast þá gegn honum af fullri hörku. Óneitanlega læðist að manni sá grunur að þessir auðjöfrar óttist að samningurinn verði of góður. Þá gæti róðurinn orðið þyngri. Ég get vel skilið að þeir sem nú „eiga“ fiskinn í sjónum gætu beinlínis þurft að hlaupa beint á klósettið með iðrakveisuna sína ef meirihluti kjósenda samþykkir á endanum aðild að ESB. Þeir gætu ekki lengur flutt hagnað sinn í skattaskjól gegnum sölufyrirtæki eða frá skipum til fiskvinnslu. Fjölmörg önnur fyrirtæki og sölukeðjur starfa nú í fákeppni og þegjandi samráði og hagnast ljómandi vel. Eigendur þeirra óttast fátt meira en samkeppni. Ekkert er eðlilegra. Þótt framtíðin sé alltaf óljós er fullvíst að þótt viðræður verði samþykktar í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu verðum við alveg jafn sjálfstæð og fullvalda þjóð að henni lokinni. Eigum við ekki bara að skoða væntanlega samning í rólegheitum og ákveða svo hvernig við bregðumst við honum. Verði hann samþykktur þarf líka að breyta stjórnaskrá. Slíka breytingu þarf Alþingi að samþykkja tvisvar með þingkosningum á milli. Við fáum að kjósa aftur og aftur áður en ESB-aðild verður að veruleika. Fullveldið og sjálfstæðið eru sem sagt ekki að fara neitt. Höfundur er gamalmenni sem vill gjarnan að unga fólkið fái tækifæri til að ákvarða framtíð sína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Eldri borgarar Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun