Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Jón Þór Stefánsson skrifar 11. ágúst 2026 11:02 Búið er að bera kennsl á hinn látna. Vísir/Vilhelm Búið er að bera kennsl á mann sem lést í bílslysi í Þrengslunum sunnudagskvöldið 26. júlí síðastliðinn. Það var þó lögreglu erfiðara en oft, og þurfti hún að afla dómsúrskurðar til þess að framkvæma réttarkrufningu til þess að fá úr því skorið.
Landsréttur heimilaði á dögunum Lögreglunni á Suðurlandi að framkvæma réttarkrufningu á manni sem lést í bílslysi í Þrengslunum sunnudagskvöldið 26. júlí. Ástæðan var sú að ekki tókst að bera kennsl á hinn látna, en þó, af úrskurðum dómstólanna að dæma, virtist lögreglu gruna hver hann var. Áður hafði Héraðsdómur Suðurlands hafnað lögreglunni að framkvæma krufninguna, en Landsréttur sneri ákvörðuninni við. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við fréttastofu að búið sé að bera kennsl á hinn látna. Það gerðist þó ekki í gegnum réttarkrufninguna. „Það gerðist í millitíðinni að aðstandendur komu og báru kennsl á hann. Það er ekki vafi hvað það varðar lengur. Þetta eru eiginlega belti og axlabönd,“ segir hann. Bíllinn fór útaf á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells.Vísir/Vilhelm Slysið varð á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells. Tveir voru slasaðir í bílnum. Annar þeirra lést og hinn, sem var ökumaðurinn, var fluttur á slysadeild, og var af úrskurðinum að dæma, þungt haldinn. Lögreglan gat ekki tekið skýrslu af honum sökum ástands. Í úrskurðinum segir að ætla megi að ökumaðurinn „hafi misst stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin hafi hafnað utan vegar. Hafi mátt sjá skrikför á veginum í um 200 metra fjarlægð frá bifreiðinni og ummerki í vegkantinum þar sem ætla megi að bifreiðin hafi farið út af veginum.“ Að sögn Þorsteins er lögreglan enn með málið til rannsóknar. Til skoðunar er hvort ökumaðurinn hafi gerst sekur um brot á 215. grein almennra hegningarlaga, sem varðar manndráp af gáleysi. Landsréttur úrskurðaði í málinu.Vísir/Viktor Freyr Stolið vegabréf og óvssa Samkvæmt úrskurðinum var það sem gerði lögreglu erfitt fyrir, til þess að bera kennsl á manninn var að lögregla fékk afhent stolið vegabréf, sem var sagt í eigu hins látna, frá þriðja aðila. „Ekki hafi verið unnt að bera kennsl á hinn látna með fullnægjandi hætti og bið eftir því að borin verði kennsl á hann með öðrum hætti gæti valdið réttarspjöllum,“ segir í greinargerð lögreglu. Vegna óvissunnar var það mat lögreglu að ekki væri ljóst hvort þeir aðstandendur sem hún hafði haft samband við tengdust virkilega hinum látna. Því vildi lögreglan framkvæma rannsókn þar sem erfðaefni mannsins væri borið saman við þessa meintu aðstandendur.
Lögreglumál Dómsmál Umferðaröryggi Samgönguslys Ölfus Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Sjá meira