Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Jón Þór Stefánsson skrifar 11. ágúst 2026 09:14 Mynd frá vettvangi. Þriðji maðurinn, erlendur ríkisborgari, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Áður höfðu tveir menn, einn íslenskur og annar erlendur, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þessi þriðji maður verður í varðhaldi til 14. ágúst næstkomandi. Hinir mennirnir verða í haldi annars vegar til 21. ágúst, og hins vegar til 17. ágúst Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Til rannsóknar er manndráp sem mun hafa verið framið í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag á sunnudag. En eftir að lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri fluttur á Landspítalan, þar sem hann svo lést síðdegis sama dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Skömmu eftir að tilkynnt var um málið um þrjúleytið á sunnudag var einn maður handtekinn. Þá voru fleiri menn handteknir í umfangsmikilli lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík. Lögmaður eins mannanna, sem úrskurðaður hefur verið í varðhald, greindi frá því í kvöldfréttum Sýnar í gær að hann hyggðist áfrýja ákvörðuninni um gæsluvarðhald. „Hann átti engan þátt í því sem þarna átti sér stað; hann einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B, hafði enga aðkomu að málinu að öðru leyti,“ sagði lögmaðurinn sem um ræðir, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. „Það er löngu tímabært að íslenskir dómstólar hætti að vera svona leiðitamir við ákæruvaldið og standi í lappirnar gagnvart kröfum ákæruvaldsins.“ Rannsókn á mannsláti á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þessi þriðji maður verður í varðhaldi til 14. ágúst næstkomandi. Hinir mennirnir verða í haldi annars vegar til 21. ágúst, og hins vegar til 17. ágúst Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Til rannsóknar er manndráp sem mun hafa verið framið í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag á sunnudag. En eftir að lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri fluttur á Landspítalan, þar sem hann svo lést síðdegis sama dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Skömmu eftir að tilkynnt var um málið um þrjúleytið á sunnudag var einn maður handtekinn. Þá voru fleiri menn handteknir í umfangsmikilli lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík. Lögmaður eins mannanna, sem úrskurðaður hefur verið í varðhald, greindi frá því í kvöldfréttum Sýnar í gær að hann hyggðist áfrýja ákvörðuninni um gæsluvarðhald. „Hann átti engan þátt í því sem þarna átti sér stað; hann einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B, hafði enga aðkomu að málinu að öðru leyti,“ sagði lögmaðurinn sem um ræðir, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. „Það er löngu tímabært að íslenskir dómstólar hætti að vera svona leiðitamir við ákæruvaldið og standi í lappirnar gagnvart kröfum ákæruvaldsins.“
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Rannsókn á mannsláti á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira