Tollar kísilframleiðslu í Kína Samúel Karl Ólason skrifar 7. ágúst 2026 09:44 Donald Trump og Howard Lutnick í Hvíta húsinu. AP/Alex Brandon Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum.
Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, sagði að með þessum tollum myndi birgðakeðjan fyrir framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara, sem eru notaðir í alls konar tölvubúnað, færast til Bandaríkjanna. „Við erum með iðnaðinn hér, hann er of smár og hann mun springa út,“ sagði Lutnick samkvæmt Politico. Forsvarsmenn bandarískra fyrirtækja sem framleiða sólarrafhlöður hafa sakað samkeppnisaðila þeirra í Kína um að fá ósanngjarnan stuðning frá ríkinu og þannig dæla miklu magni af ódýrum rafhlöðum á markaðinn. Tilskipun forsetans um tollana snýst að mestu um hálfleiðara en ekki sólarrafhlöður, sem Trump hefur ítrekað gagnrýnt harðlega. Sérstaklega er tekið fram að getan til að framleiða kísilafurðir sé mikilvægur grunnur í iðnaðarframleiðslu og hergagnaframleiðslu. Reuters segir þó að hálfleiðaraframleiðsla heimsins noti eingöngu um 2,4 prósent af framleiðslu heimsins á fjölkristölluðum kísli (Polysilicon). Langmest fer í framleiðslu sólarrafhlaðna. Kínverjar eru nánast allsráðandi á þessum markaði. Tilskipuninni fylgir ákvæði um að viðskiptaráðuneytið geti aðstoðað og hvatt bandarísk fyrirtæki til að auka framleiðslu þar í landi. Ríkisstjórn Trumps hefur að undanförnu þurft að endurgreiða bandarískum fyrirtækjum milljarða dala eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu að stór hluti þeirra tolla sem Trump hefur beitt frá því hann tók aftur við embætti væru ólöglegir.
Bandaríkin Kína Donald Trump Tengdar fréttir Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Nýir tollar Bandaríkjanna gegn yfir 80 ríkjum tóku gildi í nótt, eftir að tollar sem komið var á í kjölfar þess að dómstólar úrskurðuðu „Frelsisdags“-tolla Donald Trump ólögmæta runnu út. 24. júlí 2026 07:10 Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 20. júlí 2026 22:56 Hótar tollum vegna skógareldanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. 18. júlí 2026 09:09 Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. 13. maí 2026 10:56 Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. 2. maí 2026 08:23 Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Nýir tollar Bandaríkjanna gegn yfir 80 ríkjum tóku gildi í nótt, eftir að tollar sem komið var á í kjölfar þess að dómstólar úrskurðuðu „Frelsisdags“-tolla Donald Trump ólögmæta runnu út. 24. júlí 2026 07:10
Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 20. júlí 2026 22:56
Hótar tollum vegna skógareldanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. 18. júlí 2026 09:09
Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. 13. maí 2026 10:56
Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. 2. maí 2026 08:23