Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Samúel Karl Ólason skrifar 28. júlí 2026 15:57 Vólódímír Selenskí og Donald Trump í Hvíta húsinu. Forsetaembætti Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna.
Fundurinn var lokaður blaðamönnum og þegar honum var lokið fór ekki fram blaðamannafundur, eins og Trump gerir gjarnan. Þess í stað fór Benjamín Netanjahú næst á fund forsetans. Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum eftir fundinn sagðist Selenskí hafa vottað Trump samúð vegna fráfalls öldungadeildarþingmannsins Lindsey Graham, sem var vinur Trumps. Selenskí segir Graham einnig hafa verið sannan vin Úkraínu en þingmaðurinn talaði gjarnan máli Úkraínumanna vestanhafs. Sjá einnig: „Við munum ná markmiðum okkar“ Selenskí sagðist hafa rætt framleiðslu flugskeyta fyrir loftvarnarkerfi í Úkraínu. Skortur er á slíkum flugskeytum en þau eru nauðsynleg Úkraínumönnum til að verjast rússneskum skotflaugum. Hann sagðist einnig hafa talað við Trump um mögulegar viðræður og að blása nýju lífi í þær. Hingað til hafa viðræður við Rússa skilað litlum sem engum árangri og hafa engar viðræður átt sér stað síðan Bandaríkjamenn hófu árásir á Íran. A good meeting with President Trump @POTUS at the Oval Office. Thank you for everything we do together to protect the lives of Ukrainians and advance peace. First and foremost, I offered President Trump our condolences on the passing of Lindsey Graham. He was a true friend of… pic.twitter.com/56yoaeqb2B— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) July 28, 2026 Eins og áður segir stendur nú yfir fundur milli Trumps og Netanjahús, þegar þetta er skrifað. Þetta er fyrsti fundur leiðtoganna síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu sameiginlegar árásir á Íran í lok febrúar. Undanfarnar vikur hafa Ísraelar ekki tekið þátt í árásum á Íran, svo vitað sé. Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, sagði í dag að þar á bæ væri vilji til að gera árásir á skotmörk eins og orkuver í Íran. Katz sagði Ísraela vilja flytja Íran fjörutíu ár aftur í tímann, með þeim árásum. Trump hefði þó meinað Ísraelum að gera það til að reyna að draga úr árásum Írana á nágranna sína. Meðal þeirra markmiða sem Trump-liðar og Ísraelar töluðu um í upphafi stríðsins gegn Íran var að gera útaf við kjarnorkuáætlun ríkisins og að velta klerkastjórninni úr sessi. Hvorugt markmiðið hefur náðst og stríðið, sem hefur nú staðið yfir í rúma fimm mánuði, hefur haft miklar efnahagslegar afleiðingar. Fregnir hafa borist af því að Trump hafi orðið reiður út í Netanjahú vegna stríðsins. Virtist pirraður út í Netanjahú Fyrir fundinn með Netanjahú virtist Trump pirraður út í hann. Forsetinn kvartaði yfir fréttaflutningi um að Netanjahú ætlaði að kynna fyrir honum hvað Íranir væru að gera á stað sem talinn er tengjast kjarnorkuáætlun Írana og Trump hefur ítrekað hótað að sprengja í loft upp. Þessi staður hefur verið kallaður Hakafjall. „Ég veit nákvæmlega hvað er að gerast á Hakafjalli,“ sagði Trump í samtali við stjórnendur þáttarins Fox & Friends í dag. „Af hverju þurfum við að tilkynna heiminum þetta?“ spurði Trump og virtist pirraður. AINSLEY: There are reports that Netanyahu is gonna talk to you about ongoing excavation at Pickaxe Mountain, construction vehicles paving new access roads, fortificationsTRUMP: Well, I don't need Bibi to tell me that. Bibi is telling me that because he wants me to stay involved pic.twitter.com/d9tmTbyFXU— Aaron Rupar (@atrupar) July 28, 2026 Hann staðhæfði að það sem gerðist væri ekkert vandamál. Þá hélt Trump því fram að með þessu vildi Netanjahú hafa áhrif á Trump. Trump sagði einnig að Bandaríkjamenn hefðu rústað hinum kjarnorkurannsóknarstöðvum Íran og myndu einnig rústa Hakafjalli, ef það reyndist nauðsynlegt.
Donald Trump Bandaríkin Úkraína Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Ísrael Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira