Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Jón Þór Stefánsson skrifar 26. júlí 2026 12:30 Málið varðar hjúkrunarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Starfsmaður hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum taldi að andlát konu á tíræðisaldri, sem þar dvaldi, hafi borið að með óeðlilegum og jafnvel saknæmum hætti. Í kjölfarið voru tvær samstarfskonur þessa starfsmanns handteknar, grunaðar um manndráp.
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar í málinu sem var kveðinn upp í byrjun febrúar, skömmu eftir að málið kom upp í janúar síðastliðnum, en var birtur á vef dómstólanna á dögunum. Hvorki héraðsdómur né Landsréttur féllust á að úrskurða konurnar í gæsluvarðhald. Og í vikunni var greint frá því að rannsókn málsins hefði verið hætt. Konan sem lést hafði verið á lífslokameðferð þar sem henni var meðal annars gefið morfín í gegnum lyfjadælu. Svo virðist sem lögreglu hafi grunað að konurnar tvær, sem grunaðar voru í málinu, hafi af ásetningi gefið henni of stóran skammt af morfíni, sem varð til þess að hún lést skömmu síðar. „Nei, en ég geri þetta mjög oft“ Í úrskurði Landsréttar segir að engin læknisfræðileg gögn lægju fyrir í málinu sem gæfu til kynna að andlátið hafi borið að með grunsamlegum hætti. Þegar úrskurðurinn var kveðinn upp lá krufningarskýrsla ekki fyrir, en það gerir hún nú, og vegna hennar þótti ekki grundvöllur til að halda rannsókninni áfram. Það eina sem benti til þess að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað var áðurnefndur framburður samstarfsmanns kvennanna. Hann sagði að önnur þeirra hafi opnað lyfjadælu með lykli og sprautað umtalsverðu magni af morfíni í hina látnu. Hann hafi þá spurt hvort það mætti og hún, konan sem grunuð var í málinu, svarað: „Nei, en ég geri þetta mjög oft.“ Hin konan sem grunuð var í málinu sagði þessa samstarfskonu sína hafa beðið sig um að sækja tíu millilítra morfínsprautu, sem hún hafi gert, en að sú sprauta hafi þó aldrei verið notuð. Vandséð að þær myndu spilla rannsókninni Líkt og áður hefur komið fram höfnuðu bæði héraðsdómur og Landsréttur að konurnar yrðu úrskurðaðar í gæsluvarðhald. „Þótt rannsókn málsins sé á frumstigi er hvorki í skýrslu rannsakara né öðrum gögnum nánar lýst á hvern hátt háttsemi varnaraðila eða annars sakbornings geti hugsanlega með saknæmum hætti hafa leitt til andláts,“ segir í úrskurði héraðsdóms. Lögreglan fór fram á varðhald meðal annars vegna þess að sakborningarnir gætu reynt að spilla fyrir sönnunargögnum. Að mati héraðsdóms var vandséð hvernig þær myndu torvelda rannsókninni. Það var því mat, beggja dómstiga, að ekki væru næg skilyrði til að úrskurða þær í gæsluvarðhald.
Vestmannaeyjar Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Lögreglumál Hjúkrunarheimili Dómsmál Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira