Viðskipti erlent

Vill leggja fimm­tíu prósenta toll á kanadískar vörur

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Um sé að ræða bæði daglegar neysluvörur fólks, svo sem mjólkurvörur, áfengi og húsgögn, en einnig iðnaðarvörur eins og sement.
Um sé að ræða bæði daglegar neysluvörur fólks, svo sem mjólkurvörur, áfengi og húsgögn, en einnig iðnaðarvörur eins og sement. Getty/Andrew Harnik

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 

Tollarnir taki gildi 19. ágúst og eru til marks um verulega aukningu á spennu milli nágrannaríkjanna vestanhafs, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. 

Forsvarsmenn Hvíta hússins segi tollana mikilvæga til þess að vernda bandarísk fyrirtæki. Vörurnar sem tollarnir leggist á séu af ýmsum toga. Um sé að ræða bæði daglegar neysluvörur fólks, svo sem mjólkurvörur, áfengi og húsgögn, en einnig iðnaðarvörur eins og sement. Nokkrar útflutningsvörur verði undanskildar tollunum, eins og orka, pottaska og fiskur. 

Trump saki Kanada um að leggja skatt á bandarísk ökutæki og varahluti þeirra sem falli ekki undir gildandi fríverslunarsamning milli Kanada, Bandaríkjanna og Mexíkó. Hann segi Kanada hafa mismunað Bandaríkjunum með því að leggja ekki svipaðan skatt á innflutningsvörur annarra landa og segir það „óréttmætt.“

Á laugardaginn hótaði Trump að leggja tolla á Kanada vegna skógareldanma sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. Í tilskipun Trump um tollana frá því í dag er hins vegar hvergi minnst á gróðurelda.

Nýju tollarnir bætist ofan á þær viðskiptahindranir sem eru þegar í gildi milli þjóðanna tveggja. Bandaríkin haldi uppi 15 til 50 prósenta tollum á kanadískt stál, kopar og ál en Kanada hefur einnig lagt 25 prósenta toll á valdar bandarískar innflutningsvörur, svo sem bíla, stál og ál. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×