Lífið

„Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn

Freyja Þórisdóttir skrifar
Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir kepptu í söngvakeppni sjónvarpsins í fyrra með lagið Eldur.
Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir kepptu í söngvakeppni sjónvarpsins í fyrra með lagið Eldur. Facebook/Júlí Heiðar

Fjölskylda listaparsins Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur og Júlís Heiðars Halldórssonar heldur áfram að stækka en dóttir þeirra kom í heiminn á dögunum. Móður og barni heilsast vel en Þórdís gerði sér lítið fyrir og mætti í brúðkaup örfáum dögum eftir fæðinguna.

„Lítil stúlka með bollukinnar og svart hár mætti í heiminn kl. 05:01 þann 14. júlí. Móður og dóttur heilsast vel. Svo vel að hún Dísa mín mætti galvösk í brúðkaup í gær. Ekki allar hetjur þurfa skikkju en ég ákvað samt að panta eina af Temu fyrir hana Dísu mína,“ segir í fallegri færslu sem Júlí birti á Facebook.

Þar skrifar hann einnig að „hún bar sig vel eins og naglinn sem hún er og henti í brandara þegar hausinn stóð hálfur út í fæðingarstofunni. Nú er bara að njóta,“ en hamingjuóskum rignir inn undir færslu foreldranna.

Fyrir eiga þau hvort sinn strákinn en stúlkan er annað barn þeirra saman. Þau Þórdís og Júlí voru í sama bekk í Listaháskóla Íslands og höfðu verið vinir í langan tíma áður en ástin tók völdin. Þau trúlofuðu sig í maí árið 2022.


Tengdar fréttir

Júlí Heiðar og Þórdís Björk trúlofuð

Leikararnir Júlí Heiðar og Þórdís Björk eru trúlofuð. Þau greindu frá því í sameiginlegri færslu á Instagram og bað hann hennar í uppáhalds byggingunni þeirra, Samkomuhúsinu á Akureyri.

Júlí Heiðar og Dísa byrja með hlaðvarp

Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir eru byrjuð með hlaðvarp, sem heitir Upp á síðkastið. Í auglýsingu á samfélagsmiðlum stendur að fyrsti þátturinn verði gefinn út á sunnudaginn og verði á dagskrá alla sunnudaga fram að jólum.

Þór­dís og Júlí eiga von á barni

Listaparið Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir eiga þau hvort sinn soninn frá fyrri samböndum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.