Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2026 09:02 FH og Þór eru í fallsæti í Bestu deild karla. Liðin leitast eflaust eftir því að styrkja sig á næstu vikum. vísir/hulda margrét Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst.
Víkingur Hvað er búið að gerast? Fengu Ögmund Kristinsson frá Val vegna veikinda Ingvars Jónssonar. Sömdu við Eið Orra Ragnarsson en lánuðu hann strax aftur í Keflavík út tímabilið. Hvað þarf? Í ljósi þess að Elías Már Ómarsson verður frá út tímabilið þurfa þeir framherja í hans stað. Það verður alvöru álag á þeim næstu vikurnar og þeir munu sakna framlags Elíasar á þeim tíma. Svo er spurning með varamarkvörð fyrir Ögmund ef hann meiðist á meðan Aron Snær Friðriksson er ekki klár. KR Hvað er búið að gerast? Seldu Amin Cosic til Noregsmeistara Viking og Guðmundur Andri Tryggvason fer til FH. Alexander Rafn Pálmason gekk í raðir Nordsjælland í byrjun mánaðarins. Fengu Jason Daða Svanþórsson sem lék síðast með Grimsby Town á Englandi. Hvað þarf? KR þarf að leita að, og finnur vonandi, hafsent sem passar inn í þennan svakalega sóknarleik sem liðið spilar og styrkir liðið. Hann þarf að vera fljótur, sterkur, góður einn á einn og leiðtogi sem getur stillt vörninni upp í sóknarvörninni. Það ætti að vera einfalt mál að finna þennan hafsent. Fram Hvað er búið að gerast? Ekkert. Hvað þarf? Það er engin augljós staða sem kallar á mann fyrir Fram að styrkja sig í glugganum. En horfandi utan frá á liðið myndi ég reyna að styrkja vörnina og finna varnarmann sem er sterkari en Israel Garcia. Breiðablik Hvað er búið að gerast? Fengu Hlyn Frey Karlsson að láni frá Brommapojkarna út tímabilið. Seldu Arnar Bjarka Gunnleifsson til Brøndby en hann fer ekki þangað fyrr en í janúar á næsta ári. Hvað þarf? Blikarnir hafa verið í miklu meiðslaveseni og ungu strákarnir hafa fengið miklu fleiri tækifæri en þeir gerðu sjálfir eflaust ráð fyrir. Blikarnir þurfa öflugan miðjumann og alvöru framherja með Kristófer Inga Kristinssyni. Það skal þó sagt að Arnar Bjarki hefur staðið sig feykivel í síðustu leikjum. Valur Hvað er búið að gerast? Tryggvi Hrafn Haraldsson staðfesti við Fótbolta.net að hann færi til ÍA, líklega eftir tímabilið. Hvað þarf? Ég held að þeim veiti ekki af styrkingu á miðjuna og frammi. Þá vantar mest miðjumann sem getur stýrt spilinu. Svo eiga þeir að selja Tryggva strax og sækja sóknarmann fyrir hann. Keflavík Hvað er búið að gerast? Eiður Orri Ragnarsson hefur samið við Víking en klárar tímabilið með Keflavík. Markvörðurinn Helgi Bergmann Hermannsson kom vegna meiðsla Mirsad Basic. Hvað þarf? Svipað og með Fram. Liðið virðist í góðu jafnvægi varðandi stöður og ekkert augljóst sem kallar á mann. Ef ég þyrfti að velja mann inn fyrir Keflavík myndi ég sennilega fá inn varnarmann eða kantmann til að fylla skörðin sem Davíð Helgi Aronsson, Alpha Conteh og Eiður Orri Ragnarsson skilja eftir sig þegar þeir yfirgefa svæðið eftir tímabilið. Stjarnan Hvað er búið að gerast? Fengu Árna Vilhjálmsson sem lék síðast með Al Sehal í Sádi-Arabíu. Bjarki Hrafn Garðarsson samdi við Borussia Dortmund. Hvað þarf? Hafsent, hafsent, hafsent. ÍBV Hvað er búið að gerast? Milan Jezdimirovic og Filip Stuparevic eru farnir frá félaginu. Hvað þarf? Þeir þurfa meiri breidd í hafsentastöðunum ef Sigurður Arnar Magnússon eða Mattias Edeland meiðast. Einnig miðjumann á sama leveli og Milan Tomic og Alex Freyr Hilmarsson. ÍA Hvað er búið að gerast? Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur staðfest að hann fari í ÍA en ekki liggur fyrir hvenær. Fengu Guðmar Gauta Sævarsson frá Fylki. Markvörðurinn Jón Sölvi Símonarson kom vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. Hvað þarf? Það er spurning hvort þeir þurfi að bregðast við og fá sér framherja ef Viktor Jónsson verður seldur í glugganum. En eins og hópurinn lítur út í dag þá myndi ég leita að öflugum hafsent (finnst eins og ég hafi sagt þetta áður). KA Hvað er búið að gerast? Ekkert. Hvað þarf? Fyrst og fremst þarf KA djúpan miðjumann sem ver vörnina. Ekki er verra ef hann getur líka stjórnað spilinu og er góður með boltann. Númer tvö væri svo að fá góða níu til að skora nokkur mörk. FH Hvað er búið að gerast? Búnir að semja við Guðmund Andra Tryggvason og Oliver Stefánsson. Hvað þarf? Þá vantar vinstri bakvörð svo þeir hætti að nota Baldur Kára Helgason þar enda á hann heima á miðjunni. Svo vantar annan „Björn Daníel“ í tíuna, leikmann sem getur fengið boltann í svæðinu á milli varnar og miðju andstæðings og einnig hlaupið á allar fyrirgjafir Kjartans Kára Halldórssonar og sett þær í netið með Úlfi Ágústi Björnssyni. Þór Hvað er búið að gerast? Sebastian Haugland er farinn aftur heim til Noregs. Hvað þarf? Það er nokkuð ljóst að þeir þurfa að styrkja sig vel í glugganum. Þá vantar 3-4 leikmenn og helst leikmann í hverja línu, vörn, miðju og sókn.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR Fram Breiðablik Valur Keflavík ÍF Stjarnan ÍBV ÍA KA FH Þór Akureyri Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn