Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Ritstjórn skrifar 7. júlí 2026 19:03 Mennirnir fjórir eru allir íslenskir, á þrítugs, fertugs og sextugsaldri. Vísir/Vilhelm Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson hafa verið ákærðir í umfangsmiklu fíkniefnamáli vegna innflutnings á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir í málinu.
Mennirnir fjórir hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Skipverjarnir tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu og tollgæslu í Sundahöfn þegar Dettifoss kom til hafnar 13. apríl síðastliðinn. Í kjölfarið voru fjórir til viðbótar handteknir og húsleitir gerðar á nokkrum stöðum. Þrír þeirra voru síðar látnir lausir en einn þeirra, Sævar var úrskurðaður í gæsluvarðhald ásamt skipverjunum tveimur. Kastriot var síðan handtekinn vikuna eftir. Tólf vikur eru liðnar frá fyrstu handtökunum, en samkvæmt lögum má gæsluvarðhald á rannsóknarstigi að jafnaði ekki vara lengur en tólf vikur nema ákæra hafi verið gefin út. Mennirnir hafa setið í haldi á grundvelli almannahagsmuna. Slíkt er heimilt þegar sterkur grunur leikur á að sakborningur hafi framið brot sem getur varðað tíu ára fangelsi eða meira. Innflutningur á ávana- og fíkniefnum getur varðað allt að tólf ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum. Kastriot Pepaj kom til Íslands frá Albaníu árið 2015 og sótti hér um alþjóðlega vernd. Hann sagðist óttast hefndir glæpagengis í heimalandinu eftir að hafa verið skotinn í höndina. Þá var einnig vísað til alvarlegra heilbrigðisástæðna innan fjölskyldunnar. Útlendingastofnun synjaði umsókninni og ákveðið var að vísa fjölskyldunni úr landi. Málið vakti mikla athygli þegar lögregla sótti fjölskylduna til að flytja hana brott. Var meðal annars boðað til fjölmennra mótmæla en að lokum fór það svo að Alþingi greip inn í málið og veitti Pepaj og fjölskyldu hans íslenskan ríkisborgararétt með lögum. Sævar Hilmarsson hefur einnig áður komið við sögu í dómsmálum hér á landi. Hann hefur hlotið dóma fyrir brot, meðal annars á vopnalögum, fíkniefnalögum og umferðarlögum. Mennirnir fjórir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Lögreglumál Smygl Eimskip Fíkniefnabrot Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira