Ekið á hana sama dag og henni var sagt upp hjá borginni Lovísa Arnardóttir skrifar 3. júlí 2026 11:07 Hólmfríður var að hjóla yfir Kringlumýrarbraut inn á Laugaveg þegar ekið var á hana. Aðsend og Vísir/Vilhelm Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar á velferðarsviði, var sagt upp eftir að ekið var á hana á leið til vinnu. Hólmfríður er mikið slösuð en er á batavegi.
Vísir heyrði í Hólmfríði sem vísaði til færslu á Facebook um daginn örlagaríka. Hólmfríður Helga segir þar að hún hafi komist að því að henni hafi verið sagt upp, og öðrum, á meðan hún lá á bráðamóttöku Landspítalans. „Á fimmtudagsmorguninn, fyrir viku síðan í dag, lagði ég af stað hjólandi út í daginn. Ég var að rúlla yfir Kringlumýrarbrautina á grænum gönguljósum þegar ég var keyrð niður. Ég sá bílinn koma á fullri ferð og tíminn hægði á sér. Þegar höggið kom og meðan á fluginu stóð hugsaði ég: „Ég er að lenda í slysi núna. Verð að vanda mig og lenda vel.“ Stórundarleg lífsreynsla,“ segir Hólmfríður í færslu sinni. Færsla Hólmfríðar sem hún birti í gær. Facebook Nokkrum klukkustundum síðar hafi hún svo fengið fréttirnar um uppsögn hennar og annarra á sviðinu. „Ég er öll marin og blá frá toppi til táar, illa viðbeinsbrotin, með fjögur brotin rifbein og hluti tveggja hryggjarliða, þvertindarnir, eru brotnir. Svo fékk ég svokallað loftbrjóst og virkilega hressilega heilahristing. Ég er ansi aum og löskuð en vá, hvað ég er þakklát fyrir að vera á lífi. Ég er ótrúlega heppin að eiga góða batavon,“ segir hún og að hún sé afar þakklát fyrir að fjölskylda og vinir hafi veitt henni aðstoð og gleði í bata. Meðal þeirra er líka fólk sem hún kynntist í starfi sínu hjá borginni, í Ráðhúsinu og Borgartúni. „Ég vann á báðum stöðum og átti því óvenjustóran hóp vinnufélaga. Ef þið bara vissuð hvað það er margt frábært fólk að störfum barna, fólk sem vinnur verk sín vel og af metnaði, notar bæði heila og hjarta til þess. Það er ekki öllum gefið. Mun sakna þess að vinna með þeim en á þau sem vini áfram,“ segir hún og óskar svo eftir ráðleggingum um afþreyingu í batanum. Hólmfríður Helga var ráðin til Reykjavíkurborgar í maí árið 2020 og starfaði því þar í um sex ár. Fyrir það starfaði hún sem blaðamaður á Stundinni, RÚV og Fréttablaðinu. Tveir vinna til áramóta Alls var 18 sagt upp fyrir rúmri viku síðan á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, þar með talið öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar. Skipulagsbreytingar, sem voru samþykktar í borgarráði, höfðu alls áhrif á 27 stöðugildi og voru einhverjir færðir til í starfi. Fram hefur komið í fréttum í dag að tveir þeirra hafi verið beðnir að vinna til áramóta en í fréttum sama dag og greint var frá uppsögnum kom fram að ekki hefði verið óskað eftir vinnuframlagi fólks. Haft er eftir borgarstjóra í fréttinni að ofan að nýtt fyrirkomulag samskipta og miðla verði kynnt á næstunni.
Reykjavík Borgarstjórn Vistaskipti Heilbrigðismál Mest lesið Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Bæjarstjóri í þriðja skipti Innlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Innlent Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Erlent Fleiri fréttir Quang Le fer ekki langt Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent