Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Birgir Olgeirsson skrifar 3. júlí 2026 07:01 Atli Björn Levý, samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, fer yfir Borgarlínuverkefnið í hlaðvarpi Vísis. Vilhelm Áform Borgarlínunnar gera ráð fyrir að bílaakreinum fækki á ákveðnum köflum, meðal annars á Suðurlandsbraut, þótt spár geri áfram ráð fyrir aukinni bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu.
Atli Björn Levy, samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum, segir skýringuna felast í því að verkefnið snúist um flutningsgetu kerfisins í heild, ekki aðeins fjölda akreina á hverjum götukafla. Til að Borgarlínan virki þurfi vagnarnir að komast greiðlega um helstu samgönguása og ekki sitja fastir í sömu umferð og aðrir. Þess vegna þurfi á sumum stöðum að taka rými undir sérakreinar, jafnvel þar sem bílaumferð heldur áfram að aukast. Atli segir þó að það sé ekki sjálfgefið að fækkun akreina á beinum kafla þýði samsvarandi aukningu tafa. Á annatíma myndist vandinn oft annars staðar. „Flöskuhálsinn á annatímum er ekki endilega fjöldi akreinanna, heldur þá eru það þessar tengingar og ljósastýrðu punktarnir sem eru flöskuhálsinn,“ segir Atli í hlaðvarpsviðtali við Vísi. Hlusta má á viðtalið á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Á Suðurlandsbraut gera núverandi áform ráð fyrir miðjusettum Borgarlínuvagni og að bílaakreinum fækki um eina í hvora átt á ákveðnum köflum. Atli segir að þar þurfi að horfa sérstaklega til gatnamóta, ljósastýringar og tenginga inn og út af götunni til að milda áhrifin á bílaumferð. Þess ber að geta að nýr meirihluti í borginni hefur synjað deiliskipulagi Suðurlandsbrautar og vill endurskoða áætlanir með hana. Atli segir það geta tafið tímalínu Borgarlínunnar en hann segir núverandi plan Borgarlínunnar vera bestu útfærslu með tilliti til öryggis og umferðarflæðis. „Ef þetta eru þessar hugmyndir um að fara með Borgarlínuna í hægri akrein við hlið núverandi umferð og reyna að halda þessum fjölda bílaakreina líka, þá erum við komin í lausn sem Borgarlínuverkefnið mælir ekki með bara vegna umferðaröryggis,“ segir Atli. Hann segir Suðurlandsbrautina ekki verða metna eina og sér. Hún sé hluti af stærra samgöngukerfi þar sem einnig sé gert ráð fyrir stofnvegaframkvæmdum á borð við Miklubrautargöng og Sæbrautarstokk. „Þannig að þegar þú ert að hugsa þetta þá megum við ekki detta í einhverja rörsýn og horfa bara á einhvern ákveðinn gang. Það er búið að hugsa þetta í heild sinni,“ segir Atli. Í dag eru um fjögur til fimm prósent ferða á höfuðborgarsvæðinu farin með almenningssamgöngum. Markmiðið er að hlutfallið verði komið í tólf prósent árið 2040. Borgarlínuverkefnið gerir þó ráð fyrir áframhaldandi vexti bíla í umferð, en vonast er til að aukin notkun almenningssamgangna hægi á vextinum. Samhliða Borgarlínu er einnig gert ráð fyrir uppbyggingu hjólastíga og breytingum á stofnvegakerfinu. Atli segir að með þessu sé reynt að taka við vexti borgarinnar án þess að allur viðbótarþunginn lendi á sama gatnakerfi og í dag. „Mér finnst engin ástæða til þess að hugsa eins og himinn og jörð séu að farast,“ segir Atli.
Borgarlína Samgöngumál Hlaðvarp Vísis Reykjavík Skipulagsmál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Sjá meira