Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júlí 2026 07:17 Samfylkingin í borginni sakar nýjan meirihluta um blekkingarleik. Vísir Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu fyrirhugaðar breytingar á ráðum Reykjavíkurborgar í bókun á fundi borgarráðs í gær og saka nýjan meirihluta um blekkingarleik gagnvart borgarbúum.
Til umræðu var tillaga um að breyta heiti öldungaráðs í öldunga- og notendráð fatlaðra en í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar segir meðal annars að kostnaður við nýtt ráð muni verða sá sami og við mannréttindaráð, sem þó sinnti mun fleiri verkefnum. „Kostnaður við nýtt ráð er nákvæmlega sá sami og kostnaður var við mannréttindaráð, sem sinnti auk verkefna á sviði öldrunar- og fötlunarmála, málefnum fólks af erlendum uppruna, jafnréttismálum og ofbeldisvörnum,“ segir í bókun Samfylkingarinnar. „Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar telja að allur þessi leiðangur með tilheyrandi upphrópunum og niðurlagningu mannréttindaráðs og -skrifstofu hafi einungis verið til þess fallinn að slá ryki í augu borgarbúa og láta líta út fyrir að verið væri að hagræða.“ Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu einnig fram fyrirspurn á fundinum þar sem óskað var svara við því hvernig upplýsingamálum hefði verið og yrði háttað í kjölfar þess að öllum upplýsingafulltrúum á samskiptasviði var sagt upp störfum. Spurningarnar eru eftirfarandi: 1. Hvaða þjónustu mun velferðarsvið fá, frá miðlægu teymi, þegar upplýsingafulltrúa velferðarsviðs sem starfaði á skrifstofu borgarstjóra hefur verið sagt upp? 2. Hvernig hafa upplýsingamál verið leyst, á skrifstofu borgarstjóra, frá því að upplýsingafulltrúum var sagt upp störfum? 3. Hafa einhverjir upplýsingafulltrúar verið ráðnir aftur og hvað réði því? Hver voru fagleg sjónarmið og ferillinn við mat á því hvaða upplýsingafulltrúa ætti að ráða aftur? 4. Er þegar búið að útvista einhverjum verkefnum á skrifstofu borgarstjóra? Er búið að semja við einhverja tiltekna stofu? Ef já, hvaða stofu og hver er kostnaðurinn? Ef ekki, verður farið í útboð? 5. Hefur nýr meirihluti þegar keypt þjónustu ráðgjafa- eða samskiptastofu frá því að nýr meirihlutinn tók við?
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira