Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Agnar Már Másson skrifar 30. júní 2026 10:46 Ming Ting Mancel. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari fer fram á sextán ára fangelsisdóm yfir Ming Ting Mancel, sem ákærð er í Edition-málinu fyrir að svipta dóttur sína lífi í samráði við eiginmann sinn. Þá er farið fram á að hún greiði allan sakarkostnað. Þetta kom fram í máli Karls Inga Vilbergssonar héraðssaksóknara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dómi í morgun. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dagurinn í réttarhöldunum í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Hún er ákærð fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samráði við eiginmann sinn, Emeric, með því að halda henni fastri inni á baði, bregða snöru um háls hennar og stinga hana í brjóstkassann tvívegis. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Baksagan er sú að eiginmaðurinn hafði greinst með lífshættulegan nýrnasjúkdóm og átt stutt eftir ólifað og því viljað svipta sig lífi, að sögn Ming. Hún hefur sagst ekki hafa getað lifað án Emerics og ætlað að fylgja honum. Hún vill einnig meina að dóttir sín hafi sjálf viljað fylgja þeim og komist að þeirri niðurstöðu alfarið sjálf. Það hafi því verið um hópsjálfsvíg að ræða. Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara taldist háttsemi Ming Ting Mancel varða við manndráp af ásetningi (211. gr. og 1), sem varðar fimm ár til ævilangt, og brot í nánu sambandi, sbr. 2. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga 19/1940. Karl Ingi vill meina að ekki sé um hlutdeildarbrot að ræða, heldur að Ming sé aðalmaður í samverknaði við eiginmann sinn. Hún hafi verið frjáls í allri ákvarðanatöku og sjálf sagt að samband þeirra hjóna hafi verið jafningjasamband. „Ákærða tók þátt í því að dánarstund Catherine hafi verið flýtt, og það hafi hún gert með ólögmætum hætti. Ásetningur hennar var kaldur og grimmur. Hún gerði ekkert til að koma í veg fyrir það.“ Vitnaleiðslum í málinu lauk í gær og farið var yfir málið í sjónvarpsfréttum Sýnar í gærkvöldi. Karl Ingi viðurkenndi að vísbendingar væru uppi um að Catherine hafi viljað deyja með foreldrum sínum, þ.e. hvernig hún skildi við sig í vinnunni og að erfðaskrá undirrituð hennar nafni hafi verið póstlögð. „Það eru bara þessi tvö atriði sem mögulega styðja það að Catherine hafi í byrjun júní hafi verið reiðubúin að deyja.“ Aftur á móti lægi fyrir í framburði Ming að Catherine hafi ekki verið ánægð með verknaðaraðferðina, þ.e. hnífsstungu, á verknaðarstundu. Á líki Catherine voru aftur á móti áverkar, til dæmis húðblæðingar á enni, skrámur á hálsi og áverka á útlimum, sem kynnu að benda til þess að hún hafi streist á móti. Frétt hefur verið uppfærð. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira
Þetta kom fram í máli Karls Inga Vilbergssonar héraðssaksóknara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dómi í morgun. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dagurinn í réttarhöldunum í Edition-málinu eftir að saksóknari og verjandi Ming Ting hafa hvor flutt sitt mál fyrir dómurunum þremur í málinu. Hún er ákærð fyrir að bana Catherine, dóttur sinni, í samráði við eiginmann sinn, Emeric, með því að halda henni fastri inni á baði, bregða snöru um háls hennar og stinga hana í brjóstkassann tvívegis. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Baksagan er sú að eiginmaðurinn hafði greinst með lífshættulegan nýrnasjúkdóm og átt stutt eftir ólifað og því viljað svipta sig lífi, að sögn Ming. Hún hefur sagst ekki hafa getað lifað án Emerics og ætlað að fylgja honum. Hún vill einnig meina að dóttir sín hafi sjálf viljað fylgja þeim og komist að þeirri niðurstöðu alfarið sjálf. Það hafi því verið um hópsjálfsvíg að ræða. Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara taldist háttsemi Ming Ting Mancel varða við manndráp af ásetningi (211. gr. og 1), sem varðar fimm ár til ævilangt, og brot í nánu sambandi, sbr. 2. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga 19/1940. Karl Ingi vill meina að ekki sé um hlutdeildarbrot að ræða, heldur að Ming sé aðalmaður í samverknaði við eiginmann sinn. Hún hafi verið frjáls í allri ákvarðanatöku og sjálf sagt að samband þeirra hjóna hafi verið jafningjasamband. „Ákærða tók þátt í því að dánarstund Catherine hafi verið flýtt, og það hafi hún gert með ólögmætum hætti. Ásetningur hennar var kaldur og grimmur. Hún gerði ekkert til að koma í veg fyrir það.“ Vitnaleiðslum í málinu lauk í gær og farið var yfir málið í sjónvarpsfréttum Sýnar í gærkvöldi. Karl Ingi viðurkenndi að vísbendingar væru uppi um að Catherine hafi viljað deyja með foreldrum sínum, þ.e. hvernig hún skildi við sig í vinnunni og að erfðaskrá undirrituð hennar nafni hafi verið póstlögð. „Það eru bara þessi tvö atriði sem mögulega styðja það að Catherine hafi í byrjun júní hafi verið reiðubúin að deyja.“ Aftur á móti lægi fyrir í framburði Ming að Catherine hafi ekki verið ánægð með verknaðaraðferðina, þ.e. hnífsstungu, á verknaðarstundu. Á líki Catherine voru aftur á móti áverkar, til dæmis húðblæðingar á enni, skrámur á hálsi og áverka á útlimum, sem kynnu að benda til þess að hún hafi streist á móti. Frétt hefur verið uppfærð.
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira