„Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Oddur Ævar Gunnarsson og Smári Jökull Jónsson skrifa 29. júní 2026 11:40 Af Orkumótinu frá því fyrir þremur árum síðan, 2023. Sýn Sport Mótsstjóri Orkumóts ÍBV segir að svo virðist vera sem umræða um hegðun foreldra á hliðarlínunni hafi haft áhrif, þar sem foreldrar hafi verið til fyrirmyndar á mótinu í ár.
Hið árlega mót fór fram í Vestmannaeyjum um helgina. Undanfarin ár hefur reglulega komið upp umræða um hegðun foreldra á hliðarlínunni, meðal annars árið 2021 þegar greint var frá því að feður á Orkumótinu, sem er fyrir tíu ára stráka, hafi látið mikið í sér heyra. Í fyrra sagði mótsstjóri ÍBV að feðgar á fótboltamótum stráka væru harðorðari og æstari heldur en á fótboltamótum stelpna. „Það er búið að vera frábært, hér er fullt af glöðum strákum að spila fótbolta, þetta hefur verið æðislegt,“ segir Sigríður Inga Kristmannsdóttir en fréttastofa ræddi við hana í gær, á lokadegi mótsins. 1100 þátttakendur voru í mótinu og 108 lið. „Það hefur ekkert komið upp á. Þetta er bara búið að ganga rosalega vel, þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt.“ Nú hefur oft verið fjallað um hegðun foreldra barna í tengslum við þessi mót, hvernig hefur fólk verið að haga sér? „Það hefur verið rosa gott. Ég held að umræðan eftir mótin okkar í fyrra hafi skilað sér. Ég hef ekki fengið neina kvörtun, á hvorugu mótinu. Það var bara eitt atvik á TM mótinu og það hefur ekki komið neitt upp á þessu móti. Ég held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín og séu farnir að halda sig á línunni.“
Vestmannaeyjar Börn og uppeldi Íþróttir barna ÍBV Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Sjá meira