Handbolti

Hættir með vefinn sinn Handbolti.is

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ívar Benediktsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á hófi Íþróttamanns ársins 2022.
Ívar Benediktsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á hófi Íþróttamanns ársins 2022. Vísir/Hulda Margrét

Ívar Benediktsson hefur ákveðið að hætta rekstri handbolti.is frá og með deginum í dag. Þetta tilkynnir hann á vefnum í dag.

Ívar og eiginkona hans, Kristín B. Reynisdóttir, sendu frá sér tilkynningu um endalok þessa öfluga handboltavefs. Fyrirsögnin er: Sögulok. Þau hafa rekið vefinn saman en Ívar er maðurinn á bak við fréttirnar.

„Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var tekin með trega enda er kastað á glæ vinnu síðustu sex ára,“ segir í tilkynningunni.

Ástæðan er að auglýsingasalan hefur minnkað í öfugu hlutfalli við fjölgun lesenda eins og kemur fram í tilkynningunni.

„Tap hefur verið á útgáfunni frá upphafi en jafnt og þétt hefur hallað undan fæti í auglýsingasölu frá ársbyrjun 2025. Áhugi auglýsenda hefur minnkað í öfugu hlutfalli við fjölgun lesenda. Síðustu vikur og mánuði hefur orðið æ skýrara að lítið vit er í að halda áfram. Ekki hafa undanfarnir mánuðir, né takmarkað útsýni til framtíðar, orðið til að hvetja okkur til frekari dáða. Þess vegna hefur viljandi jafnt og þétt dregið úr fréttaöflun undanfarnar vikur,“ segir í tilkynningunni.

Ívar Benediktsson er einn virtasti og reyndasti íþróttafréttamaður landsins en hann starfaði lengi á Morgunblaðinu og hefur verið meðlimur í Samtökum íþróttafréttamanna frá árinu 1996.

Það má lesa alla tilkynninguna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×