Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Aron Guðmundsson skrifar 31. maí 2026 23:16 Alexia í leik með Þrótti Reykjavík fyrr á tímabilinu. Vísir/Pawel Rætt var um rautt spjald sem Alexia Marin Czerwien, leikmaður Þróttar Reykjavíkur fékk í leik gegn Val í Bestu deildinni í gær í Bestu mörkunum á Sýn Sport. Sérfræðingar þáttarins sögðu hegðun leikmannsins kjánalega.
Þróttur Reykjavík vann leikinn 1-0 með marki frá Unni Dóru Bergsdóttur og það þrátt fyrir að hafa leikið rúman hálftíma manni færri. Alexia Marin, leikmaður liðsins, var rekin af velli á 58.mínútu eftir að hafa fengið tvö gul spjöld með skömmu millibili. Fyrst fyrir brot á leikmanni Vals og svo fyrir að hafa sparkað boltanum í burtu skömmu seinna þegar að Valur átti aukaspyrnu en á því liggur enginn vafi í knattspyrnureglunum að slíkt athæfi verðskuldi gult spjald. Í viðtali skömmu eftir leikslok var Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar Reykjavíkur, spurður út í sitt álit á atvikinu: „Við erum að taka þetta viðtal allt of stutt eftir leik og ég ætla ekki að segja það sem mér finnst um þetta,“ sagði hann og lét þar við sitja. Því ekki ljóst hvort hann hafi verið ósáttur við leikmann sinn eða dómgæsluna. Farið var yfir atburðarásina í Bestu mörkunum á Sýn Sport í umsjón Helenu Ólafsdóttur þar sem að Fanndís Friðriksdóttir og Ásta Eir Árnadóttir voru sérfræðingar. „Ég skil ekki hvernig hann gæti ekki verið sammála þessu,“ sagði Ásta Eir um svar Jóhanns í ljósi atburðarrásarinnar. „Þetta er bara mjög kjánalegt og hún veit alveg hvað hún er að gera. Ég veit ekki hvort að hún hafi mögulega bara gleymt því að hún hafi verið nýbúin að fá spjald.“ Klippa: Kjánaleg hegðun og rautt spjald Knattspyrnuáhugafólk sjái farið eftir þessari línu í leikjum víða um heim. „Það er ekkert verið að gefa afslátt af þessu. Að sparka bolta í burtu og vera með svona stæla, bætti Ásta við og Fanndís tók undir það: „Þetta er svo mikill óþarfi. Það munaði litlu að hún hefði skemmt leikinn fyrir Þróttara.“ Umræðuna í Bestu mörkunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Valur Bestu mörkin Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira