Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Smári Jökull Jónsson skrifar 29. maí 2026 20:34 Finnur Pálmi segir verkefnið einnig vera hópefli og þáttaka krakkanna á Kársnesinu hefur verið mjög góð. Vísir/Sigurjón Krakkarnir á Kársnesi hópast nú í hjólastrætó en þá hjóla börn og foreldrar saman í skólann. Þau læra að hjóla í umferðinni og mættu yfir hundrað hjólagarpar þegar fyrsta ferðin var farin. Mikið fjör var í morgun þegar strætóinn var ræstur af stað.
Hjólastrætó sækir innblástur erlendis frá en þar hjóla börn og foreldrar fyrirfram ákveðna leið í skólann. Spiluð er tónlist og þátttaka á Kársnesinu hefur verið afar góð. Skipuleggjendur hafa útbúið heimasíðu þar sem hægt er að sjá tímatöflur, stoppistöðvar og hjólaleiðina og lítið mál er að bæta fleiri áhugasömum hverfum í hópinn. Strætóleiðirnar tvær, norðurleiðin og suðurleiðin, mætast við bensínstöð á Kársnesinu og krakkarnir hjóla svo saman í skólann. Fréttamaður fékk að slást í hópinn í morgun. Hvað er skemmtilegast við að vera í hjólastrætó? „Allir eru saman, það er tónlist og gaman að hjóla í skólann,“ segja Eva, Guðrún Eva og Sóley sem fóru með hjólastrætó í skólann í morgun. Strákar, fáið þið að velja lögin sem eru spiluð? „Nei, en pabbi minn velur eiginlega lögin af því að hann bjó til þennan hjólastrætó,“ segir Uni sem er nemandi í 1. bekk kokhraustur. Auðveldara að koma krökkunum út á morgnanna Að sögn frumkvöðuls verkefnisins mættu yfir hundrað manns þegar fyrsta ferð var farin. Þar sem ekki eru hjólastígar er hjólað á götunni og eitt af markmiðunum er að kenna börnunum að hjóla í umferð. Þetta er væntanlega ákveðið hópefli í leiðinni? „Þetta er það. Við erum búin að kynnast, ekki bara börnin heldur foreldrarnir líka. Mér skilst að það sé miklu auðveldara að koma krökkunum út á morgnanna þannig að ég held að foreldrarnir hafi mjög gaman af þessu líka,“ segir Finnur Pálmi Magnússon, stofnandi hjólastrætó á Kársnesi. „Við settum upp vefsíðu, ég og Uni, og það er mjög einfalt ef fleiri hverfi vilja gera svipaða hluti þá er vefsíðan okkar hönnuð þannig að það er hægt að skrá fleiri leiðir og vagna. Um að gera að hafa samband og ég get hjálpað til við að rúlla afstað. Með reglurnar á hreinu Krakkarnir eru búnir að læra réttu handahreyfingarnar í umferðinni. Hverjar eru reglurnar og hvað þarf maður að kunna? „Þegar maður ætlar að beygja þá réttir maður hendina þangað eða í þessa átt og réttir upp hönd ef maður ætlar að hægja á sér,“ segir Uni og er með allt á hreinu. Að lokum fékk fréttamaður sýnikennslu um hvernig á að haga sér í umferðinni en sjón er sögu ríkari því alla fréttina má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Heimasíða hjólastrætó
Kópavogur Hjólreiðar Börn og uppeldi Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Krakkarnir á Kársnesi hópast í hjólastrætó Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Sjá meira