Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. maí 2026 21:02 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir skattheimtuna skila sér beint í verðið. Vísir/Anton Brink Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir sífellt fleiri ferðamenn hafa ekki fundist ferðalagið sitt þess virði vegna hás verðlags. Hann kallar eftir því að stjórnvöld hætti að líta á ferðaþjónustuna sem „einhvers konar tunnu sem hægt sé að moka peningum í ríkissjóð“.
Diljá Matthíasardóttir vakti athygli á því í skoðanagrein á Vísi að sífellt fleiri ferðamenn sem ferðast til Íslands telja að Íslandsferðin hafi ekki verið peninganna virði. Vísar hún þar í landamærakönnun Ferðamálastofu fyrir árið 2025. „Árið 2022 var hlutfall þeirra ferðamanna um 11% en í fyrra var hlutfallið komið í rúmlega 18%,“ skrifar Diljá. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir Ísland almennt vera dýran áfangastað. „Þá náttúrulega hjálpar ekki til þegar stjórnvöld líta á atvinnugreinina eins og einhvers konar tunnu sem hægt sé að moka peningum í ríkissjóð endalaust úr og leggja skatta og hækka þá sem eru fyrir,“ segir Jóhannes í Reykjavík síðdegis. Hann nefndi skattahækkanir og vísar þar í kílómetragjald og vörugjaldahækkanir á bíla auk fyrirhugaðs náttúruinnviðagjalds og virðisaukaskatts á baðlón. „Þetta náttúrulega bætist bara allt ofan á verðmiðana. Það er ekkert hægt að taka þetta inn í fyrirtækjarekstur á Íslandi eins og staðan er í dag. Flest íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu eru bara lítil ferðaþjónustufyrirtæki, í kringum áttatíu prósent þeirra eru með svona níu starfsmenn eða færri,“ segir Jóhannes. Það sé því sífelld barátta að vera dýrari áfangastaðurinn og tryggja að gæðin séu í samræmi við verðið. Enginn vill borga fyrir malarhaug Meðal þess sem Jóhannes ræddi voru bílastæðagjöld við ferðamannastaði. „Það er í sjálfu sér ekkert að því að það séu greidd bílastæðagjöld eða þjónustugjöld þar sem er verið að veita einhverja þjónustu og þeim mun betri sem þjónustan er, því sanngjarnara,“ segir Jóhannes. „Fólk er farið að velta fyrir sér, bíddu hvað er ég að borga, þegar það kemur á staði þar sem er kannski búið að dreifa úr malarhaug og kalla það bílastæði og byrjað að rukka. Engin þjónusta, jafnvel ekki klósett eða neitt og þetta er það sem býr til svona upplifun.“ Þó sé fjöldi ferðamannastaða með gjaldskyld bílastæði en bjóði að sama skapi upp á góða þjónustu á svæðinu, svo sem salernisaðstaða. Skoðun ferðamanna breytist þó þegar engin slík þjónusta er í boði. „Að fólk upplifi þá sína fyrstu Íslandsferð með sem bestum hætti og að það fái það fyrir peningana sem það vildi, það er náttúrulega líklegasta leiðin til þess að fólk hugsi sér, ja best ég fari þangað aftur.“ Jóhannes segir að koma þurfi hömlum á skattheimtuna sem bitni á ferðaþjónustunni þar sem hún skili sér beint í verðið. „Annað sem náttúrulega þarf að gerast í rekstrarumhverfi fyrirtækja er að það þarf að ná einhvers konar böndum á efnahagslífinu í heild, bara vöxtum og verðbólgu, það bíður allt samfélagið eftir því,“ segir hann.
Ferðaþjónusta Skattar, tollar og gjöld Bylgjan Reykjavík síðdegis Efnahagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira