Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar 15. maí 2026 23:15 Ég er og hef alltaf verið stoltur Breiðhyltingur. Það endurspeglast kannski best í því að ég hef búið þar nánast allt mitt líf. Mér finnst Breiðholtslaug langbesta sundlaug landsins, flest störf sem ég hef unnið hafa verið í hverfinu og ég hélt meira að segja brúðkaupsveisluna mína þar. Sögusviðið í Orra óstöðvandi bókunum mínum er síðan að sjálfsögðu í Breiðholtinu þar sem Orri og Magga Messi búa, stunda skóla og íþróttir. Að alast upp í Breiðholtinu á 9. áratugnum voru algjör forréttindi og þrátt fyrir að fatatískan frá þeim tíma hafi kannski ekki elst vel, þá gera minningarnar um barnæskuna það. Það sem einkenndi uppvöxtinn í þessu unga og ört vaxandi hverfi var ævintýraleg samblanda af frelsi, öryggi og leikgleði. Á þessum árum var heldur betur líflegt samfélag uppátækjasamra krakka sem nutu sín í stórum opnum svæðum í öruggri fjarlægð frá bílaumferð. Synir Breiðholts Sæluminningar mínar sem barn í þessu yndislega hverfi fengu hins vegar þungt raunveruleikahögg þegar ég flutti heim frá Frakklandi árið 2010 þar sem ég hafði verið í atvinnumennsku. Þá sá ég hvernig fallega hverfið mitt var að grotna niður. Til allrar hamingju voru borgarstjórnarkosningar handan við hornið og því kjörið tækifæri að vekja athygli á þessu ástandi. Ég hóaði í nokkra félaga mína úr hverfinu og á leifturhraða bjuggu við til Breiðholtsskýrsluna, þar sem við fórum út um allt Breiðholt, tókum myndir og tókum saman það sem betur mætti fara. Skýrsluna kynntum við síðan rækilega fyrir öllum framboðunum. Út frá þessu verkefni varð til skemmtilegur hópur sem bar nafnið Synir Breiðholts og brösuðum við ýmislegt með það að markmiði að efla hverfið okkar. Flestir minnast kannski þess þegar við skelltum okkur í vöðlur og gerðum heiðarlega tilraun til að hreinsa Andarpollinn. Framboðið og það sem þarf að gera STRAX í Breiðholti. Nú sextán árum síðar finnst mér aldeilis þurfa að minna aftur á Breiðholtið og í stað þess að endurvekja Syni Breiðholts og búa til nýja skýrslu, þá ákvað ég að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Enda ýmislegt sem gekk á í hverfinu okkar á kjörtímabilinu sem bendir til þess að það þurfi Breiðhylting í Ráðhúsið og svo er nú margt sem betur má fara. Það þarf að ráðast í algjöra heildarendurskoðun á Mjóddinni og tryggja það að krakkarnir okkar séu örugg þar. Það þarf að stórbæta þjónusta, eins og snjómokstur og götusópun í hverfinu og fara í löngu tímabærar úrbætur til að mæta uppsafnaðri innviðaskuld. Það þarf að tryggja hagsmuni íbúa við deiliskipulagsgerð í hverfinu, draga úr fyrirhugaðri þéttingu, vernda grænu svæðin og passa að það rísi ekki ný Gímöld í Mjóddinni. Það þarf að styðja miklu betur við íþróttafélögin í hverfinu, virkja öll börn til þátttöku í íþróttum eða tómstundum og veita skólunum í hverfinu viðeigandi stuðning, svo eitthvað sé nefnt. Já það er sko af nógu að taka í Breiðholti og mikilvægt að byrja STRAX Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Fritzson Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar