Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Freyja Þórisdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 15. maí 2026 23:15 Hildur Björnsdóttir er oddviti Sjálfstæðisfólks í borginni. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess getur Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn.
Miðflokkurinn mælist með einn færri borgarfulltrúa hjá Maskínu samanborið við könnun Gallup sem birt var fyrr í dag. Á sama tíma mælist Viðreisn með þrjá í stað tveggja. Könnun Maskínu fór fram tólfta til fimmtánda maí en Gallup ellefta til fimmtánda maí. Niðurstöður allra nýjustu kannananna verða dregnar saman í nýrri kosningaspá Vísis sem birt verður að morgni kjördags. Ef könnun Maskínu reynist sannspá bætir Sjálfstæðisflokkurinn við sig tveimur fulltrúum í borgarstjórn og fer úr sex í átta. Fylgi flokksins hefur ekki mælst hærra hjá Maskínu frá því í ársbyrjun en þá var það 24,4 prósent. Flokkurinn er með 31,3 prósenta fylgi í nýjustu könnun Maskínu. Samfylkingin er næststærst og heldur sínum fimm fulltrúum. Aftur á móti hefur fylgi flokksins dalað undanfarið og mælist nú 19,4 prósent. Það er talsvert minna en þau 26,1 prósent sem flokkurinn mældist með hjá Maskínu í janúar. Viðreisn og Vinstrið mælast nú með þrjá fulltrúa hvor rétt fyrir kosningar, Miðflokkurinn tvo, Framsóknarflokkurinn einn og Sósíalistaflokkurinn einn. Flokkur fólksins, Píratar, Góðan daginn og Okkar borg mælast ekki inni í borgarstjórn. Miklar sveiflur í borgarstjórn Í könnun Maskínu er fallið hæst fyrir Pírata sem fengu þrjá fulltrúa árið 2022. Flokkur fólksins, sem mælist ekki inni, er í dag með einn borgarfulltrúa. Sósíalistar missa annan af sínum tveimur fulltrúum. Vinstrið mælist með 11,0 prósenta fylgi í könnun Maskínu á meðan Viðreisn er með 12,0 prósenta fylgi. Miðflokkurinn, sem hefur verið að mælast ansi jafnt síðan í janúar, nær tveimur inn samkvæmt könnunni og er með 9,8 prósenta fylgi en flokkurinn á engan mann í dag. Könnun Maskínu fór fram dagana tólfta til fimmtánda maí og voru svarendur sem tóku afstöðu til flokks um tæplega þrjú þúsund. Var hún lögð fyrir hóp fólks á netinu sem dreginn var með tilviljun úr Þjóðskrá. Allir svarendur eru átján ára og eldri með búsetu í Reykjavík en svörin voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur og menntun svo að þau endurspegluðu betur þýðið.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Okkar borg Góðan daginn Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Sjá meira