Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson skrifar 15. maí 2026 06:51 Ég er stoltur af Reykjavík. Hér eru öflug hverfi. Sterk íþróttafélög. Hér er gott skólakerfi og mikið aðgengi að fjölbreyttum tómstundum fyrir börn. Hér eru sundlaugar sem eru gersemar sem aðrar þjóðir öfunda okkur af. Græn svæði og borgarrými fyrir íbúa til að koma saman. Veitingastaðir. Kaffihús. Barir. Menningarstofnanir. Svona mætti lengi telja. Í Reykjavík tökum við utan um eldra fólk og öryrkja og byggjum íbúðir fyrir alla tekjuhópa sem fólk hefur efni á. Hér viljum við tryggja börnum allan þann stuðning sem þau þurfa svo öll börn fái tækifæri til að blómstra. Vegna þess að við erum sterkari saman. Ástæða þess að Reykjavík virkar fyrir alla er sú að hún, líkt og allar bestu borgir Norðurlandanna, hefur byggst upp á jafnaðarmannahugsjón síðustu áratugi. Frá því að R-listinn ýtti Sjálfstæðisflokknum frá völdum fyrir 32 árum hefur borgin breyst úr bæ sem rekinn var með tilviljanakenndu valdboði yfir í höfuðborg á heimsmælikvarða með þjónandi stjórnsýslu og iðandi mannlífi og menningu. Þessa Reykjavík vil ég verja. Borgina sem við byggðum upp saman. Reykjavíkina okkar. En ég vil líka sækja þar sem hægt er að gera betur, hlusta á athugasemdir borgarbúa og auka enn á þau miklu lífsgæði sem við Reykvíkingar búum við. Það gerum við með því að bera áfram ábyrgð hvert á öðru og forðast að hleypa flokkum að sem draga úr mikilvægri þjónustu, selja mikilvægar eignir borgarbúa og umbylta áformum sem búið er að vinna eftir árum saman við þróun borgarinnar. Stöndum við Samgöngusáttmálann Áherslur okkar í Samfylkingunni eru skýrar í öllum mikilvægustu málaflokkum. Við ætlum að standa vörð um eignir borgarbúa og koma í veg fyrir að hægt verði að brjóta niður það sem við höfum byggt upp saman. Við ætlum að einfalda lífið fyrir fólk og fyrirtæki, hraða afgreiðslu mála, stytta biðtíma, bæta þjónustu en fara áfram vel með almannafé. Eitt það mikilvægasta sem við munum gera er að standa vörð um Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem hægriflokkar vilja eyðileggja nú þegar árangur hans er rétt handan við hornið. Það er nefnilega þannig að framkvæmdir við stofnvegi og fyrstu lotu Borgarlínu eru á fleygiferð og mörgum mun ljúka á næsta kjörtímabili að óbreyttu. Ef okkur ber gæfa til að standa með sáttmálanum og klára þessa stærstu fjárfestingu í samgöngum inn á höfuðborgarsvæðið í sögunni, sem er að mestu greidd af ríkinu, þá gætu íbúar höfuðborgarsvæðisins tekið sér far með vögnum Borgarlínu áður en kosið verður næst til borgarstjórnar. Verði sáttmálinn rifinn upp og byrjað upp á nýtt þá eru þær væntingar fyrir bí, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á þegar þunga umferðarhnúta. Úrbætur munu tefjast um mörg ár. Klárum byltinguna og forðumst barnaskattinn Öflugt leik- og grunnskólakerfi fyrir öll börn er eitt mikilvægasta jöfnunartækið sem við eigum. Við í Samfylkingunni höfum verið skýr með að það sé löngu orðið tímabært fyrir ríki og sveitarfélög að taka höndum saman – í eitt skipti fyrir öll – og klára leikskólabyltinguna sem hófst með stjórn jafnaðarfólks og Reykjavíkurlistans í borginni fyrir aldamótin. Á komandi kjörtímabili ætlum við að vinna með ríkinu að rétti barna til leikskólavistar, að taka upp systkinaforgang, bæta vinnuaðstæður og fjölga leikskólaplássum um 1.500, meðal annars á fallegustu útivistarsvæðum borgarinnar eins og Elliðaárdal, Fossvogi og á Klambratúni. Þetta ætlum við að gera til að geta boðið enn yngri börnum inn á leikskóla. Þessar áherslur koma í kjölfar þess að nú þegar er búið að innleiða Reykjavíkurleiðina sem gerir leikskóla borgarinnar að enn meira aðlaðandi vinnustöðum, minnkar bil milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bætir mönnun en mætir um leið foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá efnahagslegri stöðu. Vel hefur verið tekið í leiðina og skráning nýs vistunartíma verið umfram áætlanir. Jafnaðarfólksfótsporið er svo sérstaklega sýnilegt þegar leiðin er borin saman við það sem boðið er upp á í næststærsta sveitarfélagi landsins Kópavogi. Þar fá foreldrar gjaldfrjálsan leikskóla í 30 stundir á viku en í Reykjavík eru þær stundir 36. Fyrir hjón með tvö börn á leikskóla þá kostar það um 450 þúsund krónum meira á mánuði að búa í Kópavogi en að búa í Reykjavík. Þetta er það sem er kallaður barnaskatturinn í Kópavogi. Að eiga heimili eru mannréttindi Í kosningaáherslum okkar er lagt upp með að byggja um 6.000 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Auk þess hefur náðst tímamótasamkomulag milli ríkisstjórnarinnar, sem leidd er af Samfylkingunni, og borgarinnar um uppbyggingu allt að 1.400 íbúða á reitum innan borgarinnar sem eru í eigu ríkisins. Áhersla verður lögð á að vinna verkefnið hratt og að byggja minni íbúðir sem mest eftirspurn er eftir. Á bilinu 20 til 30 prósent þeirra verða almennar íbúðir, íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir (til dæmis stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða og íbúðir fyrir eldra fólk) og búseturéttaríbúðir. Með þessum áherslum verður til stöðug og fyrirsjáanleg uppbygging þar sem markmiðið er að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og mæta raunverulegri þörf allra borgarbúa. Það að eiga heimili á nefnilega ekki að vera forréttindi, það eru mannréttindi. Sterk Samfylking er besta sóknin og öflugasta vörnin Fyrir allt þetta stendur Samfylkingin. Lífsgæði og umhverfi þar sem við berum ábyrgð hvert á öðru. Þar sem við náum mestum árangri með því að vinna saman. Samfylkingin vill gera frábæru Reykjavíkina okkar enn betri þannig að við getum öll verið stolt af henni. Sömuleiðis er afar mikilvægt að þeir flokkar sem ætla að kúvenda þeim gríðarlega árangri sem við höfum náð á undanförnum árum í borginni komist ekki í aðstöðu til að eyðileggja það sem vel gengur, draga úr mikilvægri þjónustu, selja mikilvægar eignir borgarbúa og umbylta áformum sem búið er að vinna eftir árum saman við þróun borgarinnar. Til að það gangi eftir þarf að kjósa Samfylkinguna í komandi borgarstjórnarkosningum. Hún er bæði besta sóknin í átt að því sem við getum gert betur og vörnin fyrir það sem þegar hefur verið gert og við viljum alls ekki missa. Setjum X við S á laugardaginn. Ég lofa að standa undir væntingum ykkar. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Marteinsson Samfylkingin Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar