Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson skrifar 15. maí 2026 07:52 Viðreisn hefur verið alveg skýr á því að við ætlum að einfalda stjórnkerfi borgarinnar, draga úr kostnaði og koma þeim peningum í þjónustu út í hverfunum. Við ætlum að færa milljarð árlega úr ráðhúsinu í þjónustu. Það eru 4 milljarðar á kjörtímabilinu. Það er vel hægt. Ég hef farið í samskonar aðgerðir áður sem bæjarstjóri og ráðgjafi sveitarfélaga. Aðgerðir sem hafa bætt ákvarðanatöku og skilað ávinningi fyrir íbúa. Börn af biðlistum Í dag bíða fötluð börn mánuðum og árum saman eftir greiningu og þjónustu sem þau eiga rétt á. Þetta eru ár og mánuðir sem tapast, tími sem hefur varanleg áhrif á líf barnanna og fjölskyldna. Á meðan peningar fara í of þungt stjórnkerfi, bíða börn eftir þjónustu sem á að vera sjálfsögð. Sem dæmi má nefna þrífast ekki mörg börn með einhverfu í heimaskóla og er ákall eftir fleiri sérdeildum. Börn og ungt fólk með fötlun bíða eftir skammtímadvöl og búsetuúrræðum. Viðreisn ætlar að snúa þessu við! Kostnaður borgarinnar um 3,5 milljörðum hærri Stjórnsýsla Reykjavíkur kostar rúmlega 13 milljarða á ári. Það gera tæplega 94 þúsund krónur á hvern íbúa, 11 þúsund krónum meira en landsmeðaltalið. Þetta þýðir einfaldlega að ef borgin næði sama árangri og meðal sveitarfélagið myndi stjórnsýslan kosta 1,5 milljarði minna en hún gerir í dag. Ef Reykjavíkurborg næði sama árangri og Mosfellsbær eða Akureyri, þar sem kostnaðurinn er hæstur af hinum stóru sveitarfélögunum, myndi stjórnsýsla borgarinnar kosta um 3,5 milljörðum minna en hún gerir í dag. Verðmiðinn væri enn lægri ef miðað væri við Hafnarfjörð eða Reykjanesbæ. Þessar upplýsingar liggja fyrir í opinberum gögnum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Viðreisn ætlar að snúa þessu við og hefur sett fram það hóflega markmið að lækka kostnaðinn við stjórnsýslu borgarinnar um milljarð á ári. Stærðaróhagkvæmni Reykjavíkurborg hefur fjárfest mikið í stafrænni umbreytingu. Sú fjárfesting og stærðarhagkvæmni ætti að skila sér í lægri kostnaði. Við í Viðreisn ætlum að ná þeirri hagræðingu fram. Það eru mörg verkefni sem voru einu sinni mikilvæg, en eru það ekki lengur, sem við sjáum fyrir okkur að draga úr eða hætta. Til dæmis verkefni sem voru sett af stað í COVID, eða voru afleiðing samningaviðræðna milli flokkanna sem allir þurftu að fá sitt. Byrjum á okkur sjálfum Við ætlum að byrja á okkur sjálfum með því að lækka kostnað við borgarfulltrúa úr um 850 milljónum í um 750 milljónir króna árlega. Þar eru fyrstu 100 milljónirnar komnar. Viðreisn hefur verið opin og heiðarleg með að stöðugildum í stjórnsýslu mun fækka. Það eru um 600 stöðugildi í stjórnsýslu hjá borginni sem eru ekki í beinni þjónustu við borgarbúa. Við viljum fækka þeim um 10%. Það er hagræðing um 800 til 900 milljónir króna árlega. Það mun ekki hafa áhrif á grunnþjónustu við borgarbúa, heldur þvert á móti mun stjórnkerfið verða einfaldara og kvikara. Hjá Reykjavíkurborg starfar mjög öflugt og hæft fólk sem eftirspurn er eftir í atvinnulífinu. Við breytingar sem þessar er mikilvægt að gæta að öllum réttindum starfsfólks og sýna fólki virðingu. Það er vel hægt. Ég hef gert þetta áður og ætla að gera aftur í Reykjavíkurborg. Höfundur skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Viðreisn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar