Gæði framkvæmda eru grundvallaratriði! Árni Freyr Ársælsson skrifar 12. maí 2026 09:23 Ég hef sterk tengsl við atvinnulífið og starfa daglega að mikilvægum grunninnviðum bæjarins, auk þess að þekkja vel til stjórnsýslu annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Við í Samfylkingunni í Hafnarfirði höfum fylgst náið með þeirri vaxandi tilhneigingu hjá sveitarfélögum að útvista stórum hluta af verklegum framkvæmdum og þjónustu til einkaaðila. Við teljum útvistun í sjálfu sér geta verið af hinu góða. Ef staðið er faglega að málum, með skýrum útboðsskilmálum og vel ígrunduðum verkefnalýsingum, skapast tækifæri til að gera ríkar kröfur um gæði og öryggi. Á sama tíma fær atvinnulífið svigrúm til að nýta sérþekkingu sína og koma með framsæknar lausnir að borðinu. En það er eitt mikilvægt atriði sem hefur oft viljað gleymast í þessari þróun, og það er sjálft eftirlitið. Oft og tíðum hefur eftirlit með framkvæmdum verið ábótavant. Það getur verið krefjandi fyrir stjórnsýsluna að byggja upp og viðhalda öflugu, raunhæfu og reglubundnu eftirlitskerfi, enda fylgir því óhjákvæmilegur kostnaður. Afleiðingin hefur stundum orðið sú að verktakavinnan fær á sig blæ sjálfsafgreiðslu, þar sem verktakar bera í raun eftirlit með sjálfum sér, eða að eftirlitinu er haldið í lágmarki til að ná fram skammtímasparnaði. Við í Samfylkingunni viljum nálgast þetta öðruvísi. Við lítum á útvistun sem stjórntæki til að bæta þjónustu og gæði, ekki sem leið til að draga úr ábyrgð bæjarins gagnvart íbúum sínum. Til að tryggja þetta viljum við m.a. setja mun strangari kröfur um öryggis- og gæðakerfi beint inn í útboðsgögnin. Það má ekki snúast eingöngu um að fá verkið unnið á sem hagkvæmastan hátt, heldur einnig um að skýrt sé hvaða verklag, stjórnunaraðferðir og innri ferlar verða lagðir til grundvallar. Ein öflug leið til þessa er að krefjast viðurkenndra vottana, af þeim fyrirtækjum sem taka að sér verkefni fyrir Hafnarfjarðarbæ. Með því að gera slíkar kröfur erum við að færa eftirlitið upp á hærra plan. Þegar verktaki starfar samkvæmt vottuðu kerfi fylgir því að utanaðkomandi, óháðir fagaðilar taka út og staðfesta að farið sé að ströngustu kröfum varðandi gæði og öryggi. Þessi nálgun styrkir stöðu sveitarfélagsins umtalsvert. Með því að krefjast vottana erum við ekki að losna við eftirlitsþörfina, heldur að mæta henni á skilvirkari og áreiðanlegri hátt. Við í Samfylkingunni leggjum áherslu á að bæjarbúar, starfsfólk og verktakar geti treyst því að verk séu unnin af fagmennsku, og að kröfur um öryggi og gæði séu virk verkfæri í öllum framkvæmdum, en ekki bara orð á blaði. Höfundur skipar 13. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Samfylkingin Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar