Valur – ÍBV 2-3 | Ný­liðarnir á toppnum með fullt hús stiga

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Eyjakonur eru efstar í deildinni eins og er. 
Eyjakonur eru efstar í deildinni eins og er.  vísir / guðmundur

Nýliðar ÍBV gerðu frábæra ferð á N1-völlinn á Hlíðarenda er liðið lagði Val að velli, 3-2, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld.

ÍBV er eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, níu, og hefur skorað tíu mörk í leikjunum þremur.

ÍBV náði forystunni eftir átta mínútur og það með fyrsta skoti leiksins. Sóley Edda Ingadóttir tók þá hornspyrnu fyrir Val, ætlaði að gefa boltann stutt en beint í fæturnar á Olgu Sevcova.

Olga brunaði fram, lagði boltann til hliðar á Allison Clark sem var þá ein gegn Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Vals og renndi boltanum í netið. Undir lok fyrri hálfleiks, á 41. mínútu, jafnaði Valur metin.

Nadía átti skotið sem leiddi til jöfnunarmarks Vals. vísir / guðmundur

Eftir þunga sókn átti Nadía Atladóttir skot í varnarmann við markteig, ÍBV hreinsaði frá en mjög stutt, Bryndís Eiríksdóttir gaf fyrir og þar var Kolbrá Una Kristinsdóttir grimm í markteignum og skallaði boltann í netið á sama tíma og Arden La-Rose í marki ÍBV keyrði hana niður.

Staðan þegar flautað var til leikhlés var því 1-1.

Valur jafnaði metin af miklu harðfylgi. vísir / guðmundur

Strax í upphafi síðari hálfleiks var Valur búinn að snúa taflinu við. La-Rose átti þá skelfilega sendingu beint í fætur Arnfríðar Auðar Arnarsdóttur sem þakkaði fyrir sig með því að hlaupa inn í vítateiginn hægra megin og smella boltanum upp í samskeytin fjær. Staðan orðin 1-2 og 48 mínútur liðnar af leiknum.

Margét Brynja sækir að marki. vísir / guðmundur

Valur var með tögl og hagldir næstu 20 mínútur en þá tók ÍBV aftur vel við sér og hóf að gera mikla atlögu að marki heimakvenna. Á 72. mínútu náðu Eyjakonur svo að jafna metin.

Olga átti þá þrumuskot úr D-boganum sem Tinna Brá varði út í markteig þar sem Allison Lowrey var mætt sem gammur og tæklaði boltann í netið, 2-2.

Fimm mínútum síðar náði ÍBV svo forystunni í annað sinn í leiknum. Embla Harðardóttir vippaði þá boltanum glæsilega inn fyrir vörn Vals, Viktorija Zaicikova var mætt í frábært hlaup og lyfti skoppandi boltanum snyrtilega yfir Tinnu Brá.

Staðan þá orðin 3-2 fyrir ÍBV og reyndust það lokatölur.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi...

Atvik leiksins

Tvö af mörkunum voru gjafir frá andstæðingunum. Sóley Edda Ingadóttir tók hornspyrnu og gaf beint á Olgu Sevcova sem brunaði fram og lagði upp fyrsta mark leiksins.

Arden La-Rose í marki ÍBV gaf svo beint á Arnfríði Auði Arnarsdóttur sem þakkaði fyrir sig og kom Val í 2-1 snemma í síðari hálfleik.

Stjörnur og skúrkar

Margir leikmenn spiluðu vel í leiknum. Nöfnurnar Allison Clark og Lowrey frá Bandaríkjunum virðast óstöðvandi og Lettarnir Olga Sevcova og Viktorija Zaicikova léku sömuleiðis virkilega vel.

Fjöldi ungra íslenskra leikmanna ÍBV voru þá mjög öflugir. Þar má helst nefna Eddu Dögg Sindradóttur, Emblu Harðardóttur og Kristínu Klöru Óskarsdóttur.

Arnfríður Auður Arnarsdóttir lék best í liði Vals enda var hún stöðugt ógnandi.

Sóley Edda og La-Rose fá skúrka stimpilinn í kvöld vegna ofangreinds gjafmildis.

Dómarinn

Bríet Bragadóttir og teymi hennar dæmdi leikinn á heildina einkar vel. Örfáar ákvarðanir seint í leiknum þegar hiti fór að færast í hann sem ofanritaður var ekki sammála en það er eins og gengur.

Stemning og umgjörð

Leiktíminn hjálpaði ekki mikið til og mættu fáir á N1-völlinn. Stemning var því lítil. Umgjörðin var eins góð og hægt er að vonast eftir á leik klukkan 16.30 á virkum degi.

Viðtöl 

„Góð frammistaða en slæm úrslit“

Matthías á hliðarlínunni.Vísir/Diego

Matthías Guðmundsson þjálfari Vals var ánægður með margt í leik Vals en vitanlega óánægður með úrslitin þegar liðið tapaði 2-3 fyrir ÍBV í þriðju umferð Bestu deildar kvenna á N1-vellinum á Hlíðarenda í kvöld.

„Leikurinn horfði heilt yfir mjög jákvætt við mér. Eiginlega var þetta að mörgu leyti góð frammistaða en slæm úrslit,“ sagði Matthías við Sýn Sport eftir leik.

Valur komst í 2-1 snemma í síðari hálfleik en ÍBV sneri svo taflinu við á fimm mínútna kafla síðar í hálfleiknum.

„Það kom einhver kraftur í þær og það kemur ekkert á óvart að svona lið fái einhvern kafla í leiknum. Því miður endaði þessi kafli með marki sem er ekki það sem maður kýs. Mörkin hjá þeim eru ódýr,“ sagði hann.

Erum í tröppugangi

Hvað þarf Valur að bæta til þess að koma í veg fyrir þessi mörk sem þið fáið á ykkur?

„Að halda einbeitingu. Þetta eru skyndisóknir og við þurfum að vera með hlutina á hreinu þegar við erum að sækja og koma þessum boltum frá, verjast og tala saman. Við vorum reyndar búnar að gera það vel í hálfleikum og hálfleikum en þessi mörk voru frekar ódýr,“ sagði Matthías.

Valur er með aðeins þrjú stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og hefur tapað tveimur leikjum í röð. Þjálfarinn lætur þó ekki hugfallast.

„Ég er bara jákvæður. Við erum í tröppugangi. Mér fannst þetta svona jákvæðasta frammistaðan yfir lengstan tíma í einum leik. Þá erum við allavega að stíga eitt skref upp í tröppunum.

En ég verð að viðurkenna að manni líður oft betur með að frammistaðan sé kannski ekki frábær og úrslitin góð. En það er samt góðs viti að frammistaðan hafi verið jákvæð,“ sagði Matthías Guðmundsson við Sýn Sport.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira