Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 14:11 Styrmir Þór Bragason, formaður knattspyrnudeildar Vals ræddi við íþróttadeild Sýnar um þær þjálfarabreytingar sem stjórn knattspyrnudeildar ákvað að fara í hjá karlaliði félagsins í fótbolta. Hermanni Hreiðarssyni var sagt upp störfum. Vísir/Samsett Aron Guðmundsson hitti Styrmi Þór Bragason, formann knattspyrnudeildar Vals, í dag og ræddi við hann um þá ákvörðun að reka Hermann Hreiðarsson úr starfi þjálfara meistaraflokks karla hjá Val. Styrmir fór strax að skoða þjálfarabreytingar þegar hann settist í formannsstólinn í maí.
Hermann var ráðinn fyrir átta mánuðum og náði aðeins að stýra Valsliðinu í þrettán leikjum í Bestu deildinni. Sá síðasti var 4-2 sigurleikur á Þór á Akureyri í gær. „Það er alveg ljóst að við vorum náttúrulega ekki alveg sáttir við það sem var að gerast í hópnum. Við erum með ákveðna mælikvarða sem við horfum til sem við skilgreinum sem árangur og þróunin var alls ekki í þá átt sem við vildum sjá,“ sagði Styrmir. „Við hefðum viljað sjá þetta gerast aðeins betur og árangurinn hefði verið betri miðað við þessa mælikvarða. Við töldum bara að ákvörðunin væri rétt núna að slíta þessu samstarfi og menn færu hvor í sína áttina,“ sagði Styrmir. Klippa: Formaður Vals um þjálfarabreytingar Hermann er frábær drengur Voru það mistök að ráða Hermnn í starfið upphaflega síðasta haust? „Nei, alls ekki. Hermann er frábær drengur og virkilega gaman að vinna með honum en ég held að þetta bara samstarf hafi ekki gengið upp. Það er einfalt en það er ekki hægt að skilgreina þetta sem einhver mistök,“ sagði Styrmir. „Þetta er fyrst og fremst það að verkefnið sem slíkt gekk ekki nægilega vel upp. Við töldum bara best að segja þetta gott,“ sagði Styrmir sem segir að Hermann hafi ekki tekið þessum fréttum sérstaklega illa. Fór strax að skoða þetta Styrmir settist í formannsstólinn í maí en var búinn að vera í kringum starfið í lengri tíma. Var þetta eitthvað sem hann fór strax að íhuga og skoða þegar hann tók við formennskunni? „Já, ég gerði það,“ sagði Styrmir. Valsmenn hafa ráðið Halldór Árnason til fimm ára en hann tekur ekki við fyrr en í nóvember. „Það er alveg ljóst að ég hef átt samtal við Halldór í þó nokkurn tíma og þetta er ekki einhver skyndiákvörðun. Við erum að taka náttúrulega lengri tíma ákvörðun með hagsmuni Vals og félagsins að leiðarljósi og það náttúrulega auðvitað ég held að það fari enginn í grafgötur með það að Halldór er frábær þjálfari og hefur sýnt góðan árangur í sínu starfi,“ sagði Styrmir. Enginn vill blæða peningum Halldór er með fimm ára samning og hann er óuppsegjanlegur af beggja hálfu fyrstu átján mánuðina. Hafandi þetta í huga, var það léttir að svona ákvæði hafi ekki verið í samningnum hjá Hermanni? „Ég held að það sé alveg klárt að auðvitað vill enginn blæða einhverjum peningum sem að þeir þurfa ekki að greiða en við erum auðvitað með ráðningarsamning við Hermann og stöndum við hann bara eins og hann kemur fyrir,“ sagði Styrmir. Ræddu bara við Halldór Það voru orðrómar á kreiki um að Valsmenn væru mögulega að skoða Eið Smára Guðjohnsen í þessa þjálfarastöðu. Voru fleiri kandídatar sem þið skoðuðuð á þessu tímabili? „Nei, við ræddum ekki við neinn, bara við Halldór og raunverulega var bara áhugi á því að fá hann til starfa, enda töldum við hann vera rétta manninn í starfið,“ sagði Styrmir en rætt verður við Styrmi í kvöldfréttum Sýnar.
Besta deild karla Valur Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira