Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 10:05 Örjan Nyland er ein af hetjum norska liðsins sem komið er í 8-liða úrslit. Getty/Steph Chambers Þrátt fyrir að hafa spilað fleiri leiki fyrir landslið sitt en félagslið síðastliðið ár er norski markvörðurinn Örjan Nyland í fantaformi og átti stórleik þegar Noregur sló Brasilíu út í 16-liða úrslitum á HM í fótbolta í gærkvöld.
Erling Haaland stal fyrirsögnunum eftir 2-1 sigur Noregs í gærkvöld, eins og svo oft áður, enda skoraði hann bæði mörk Norðmanna. Markvörðurinn Nyland átti hins vegar nokkrar frábærar markvörslur í leiknum og þar á meðal þegar hann sá við vítaspyrnu Bruno Guimaraes sem hefði getað komið Brasilíu yfir í leiknum. Eftir þessa frammistöðu ætti ekki að vera mikið mál fyrir hinn 35 ára gamla Nyland að finna sér vinnu. Hann er samningslaus eftir að hafa verið hjá spænska félaginu Sevilla síðustu þrjú ár en þar var hann fyrst og fremst í hlutverki varamarkvarðar í vetur. Nyland lék aðeins fimm leiki í byrjunarliði Sevilla í spænsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og óttuðust ýmsir að hann yrði dragbítur á stjörnum prýddu liði Noregs en sú varð að minnsta kosti ekki raunin í gær. Nyland hefði þó hæglega getað fetað aðra braut á íþróttaferli sínum því hann var einnig afar efnilegur handboltamaður og þar að auki í landsliðshópi á skíðum þegar hann var 13 ára. „Það var togast á um hann og hörð barátta um Örjan, sérstaklega á milli fótbolta- og handboltaliðanna. Það vildu allir fá hann,“ sagði Jostein, pabbi Örjan. Þrátt fyrir að félagsliðaferill Nylands hafi ekki gengið fullkomlega upp þá sér hann eflaust ekki eftir ákvörðun sinni, nú þegar leikur við England í 8-liða úrslitum HM bíður.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira