Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 09:01 Carlo Ancelotti ræðir við Neymar áður en hann kom inn á í leiknum gegn Noregi. getty/Catherine Ivill Ákvörðun Carlos Ancelotti að setja Neymar inn á í leiknum gegn Norðmönnum reyndist banabiti Brassa. Þetta segir blaðamaður BBC.
Í fyrsta sinn í 36 ár féll Brasilía úr leik í sextán liða úrslitum á HM eftir 2-1 tap fyrir Noregi í gær. Neymar kom inn á sem varamaður á 68. mínútu í leiknum í gær. Ancelotti gerði frekari tilfærslur á liði sínu til að koma Neymar fyrir en það sprakk í andlitið á honum. Erling Haaland skoraði tvívegis fyrir Noreg og engu breytti þótt Neymar skoraði af vítapunktinum í uppbótartíma. Blaðamaðurinn Tim Vickery sérhæfir sig í suður-amerískum fótbolta. Í pistli sínum fyrir BBC segir hann að Ancelotti hafi gert stór mistök með því að velja Neymar í HM-hóp Brasilíu og svo setja hann inn á í leiknum í gær. „Svo er það Neymar. Það er á ábyrgð þjálfarans. Samhengið var vissulega ekki auðvelt. Almenningur vildi að hann yrði valinn en var blindur á vísbendingu hverrar viku um að hann væri ekki nálægt því að vera sami leikmaður og hann var,“ skrifaði Vickery. Eins og fyrrverandi fótboltamaður Hann segir ótrúlegt að Ancelotti hafi ákveðið að henda Neymar inn á í gær. Hann kom aðeins við sögu í sigrinum á Skotlandi en Vickery segir að þar hafi hann litið út eins og fyrrverandi fótboltamaður í góðgerðarleik. Vickery segir að með innkomu Neymars hafi þeir Endrick og Vinícius Júnior verið færðir aftar, fjær marki Noregs, akkúrat þar sem þeir hefðu ekki átt að vera. Það hafi opnað svæði fyrir Norðmenn sem byrjuðu loks að finna Haaland sem gerði svo útslagið í leiknum. „Neymar lauk deginum með marki úr vítaspyrnu. En hann hefði líklega átt að vera búinn að fá rauða spjaldið fyrir brot, síðustu fýlulegu tilburðina áður en hann yfirgefur sviðið. Þegar hann var upp á sitt besta var hann stórkostlegur hæfileikamaður, allt að því snillingur, en þetta eru endalokin – eins og fyrir marga í þessu aldraða liði,“ skrifaði Vickery. Hefur spilað sinn síðasta landsleik Eftir leikinn tilkynnti Neymar að hann væri hættur í landsliðinu. Hann lék 130 landsleiki og skoraði áttatíu mörk. Enginn hefur skorað fleiri mörk fyrir brasilíska landsliðið. Neymar lék á fjórum heimsmeistaramótum. Hans besta mót var án vafa HM í Brasilíu 2014 en þá meiddist hann illa gegn Kólumbíu í átta liða úrslitunum. Fyrir vikið missti hann af leiknum fræga gegn Þýskalandi í undanúrslitunum þar sem Brasilía tapaði, 7-1.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira