Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. apríl 2026 18:43 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Karl Bretakonungur prúðbúnir í veislu í Windsor-kastala. Getty Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna.
Simon Weston var um borð í skipinu Sir Galahad þegar argentínski flugherinn varpaði á það sprengjum. Eldur braust út um borð og dró 32 skipverja til dauða. Sjálfur hlaut Weston alvarleg brunasár á um helmingi líkamans. Karl og Kamilla halda til Washington Tölvupósturinn sem um ræðir fól í sér tillögur að mögulegum hefndaraðgerðum sem beindust að Bretum. Trump-stjórnin vill geta refsað Bretum og öðrum bandalagsþjóðum fyrir að taka ekki virkari þátt í árásarstríði sínu og Ísraela við Íran. Bresk stjórnvöld við fréttunum ómyrk í máli og sögðu sjálfsákvörðunarrétt Falkslandseyinga í fyrirrúmi. Þrjátíu og tveir skipverjar fórust í logunum.Getty Falklandseyjar hafa heyrt undir Breta frá árinu 1833 en þær eru lítill eyjaklasi í Suður-Atlantshafi um 500 km austur af Argentínu. Íbúar eru um 3600, flestir breskir að uppruna og hafa ensku að móðurmáli. Samskipti Bretlands og Bandaríkjanna hafa varla verið eins súr og þau eru nú frá því einhvern tímann á nítjándu öld. Á mánudaginn halda Karl III Bretakonungur og Kamilla drottning í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og freista þess að stilla til friðar. Eigi skilið meiri virðingu Simon Weston segir Bandaríkjastjórn gera lítið úr fórn sinni og félaga sinna með framgöngu sinni. „[Trump] sýnir mennskunni sem hann ræðst að með orðum sínum nákvæmlega enga virðingu, því íbúar Falklandseyja eiga skilið meiri viðringu og það eiga líka allir uppgjafarhermenn sem börðust þar skilið,“ sagði hann í viðtali við breska ríkisútvarpið. Sjá einnig: Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Hann kveðst svekktur og sár yfir því hvernig málin hafa þróast. Milei ekki feiminn með afstöðu sína Argentínumenn, með Javier Milei forseta og náinn bandamann Trump í broddi fylkingar, hafa sagst vilja hefja aftur viðræður við Breta um yfirráð yfir eyjunum. Því eru Bretar ekki líklegir til að gangast við. Argentína hefur enn ekki gefið upp tilkall sit til eyjanna frá því að argentínski innrásarherinn var hrakinn af þeim eftir um tíu vikna átök sem kostuðu mörg hundruð manns lífið. Milei birti í gær færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann fer ekki í grafgötur með afstöðu sinnar ríkisstjórnar til þessara mála. Javier Milei forseti Argentínu flutti ræðu 2. apríl síðastliðinn í tilefni af 44 ára afmæli innrásarinnar í Falklandseyjar.Getty „Malvinas-eyjar [það sem Argentínumenn kalla eyjarnar] voru, eru og verða alltaf argentínskar,“ sagði hann. Síðast þegar haldin var atkvæðagreiðsla um framtíð eyjanna var niðurstaðan afgerandi. Árið 2013 greiddu allir íbúar eyjanna nema þrír atkvæði með því að halda áfram að vera hluti af Bretlandi.
Bretland Bandaríkin Argentína Donald Trump Karl III Bretakonungur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira