Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar 25. apríl 2026 08:33 Reykvíkingum hefur um árabil verið seld sú hugmynd að allt verði betra í framtíðinni. Ef bara fólk hefur þolinmæði til að bíða eftir borgarlínu, lausn á biðlistavanda leikskólanna eða hinni ofurþéttu framtíðarborg þar sem bílar verða allt að því óþarfir. Gott og vel að hafa framtíðarsýn. En sýnin ein og sér er gagnslaus ef geta eða staðfesta til að fylgja henni eftir er engin. Framtíðin er núna, Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill breyta þessu. Til framtíðar viljum við bættar samgöngur, fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum, sjálfbæran rekstur og kraftmeiri húsnæðisuppbyggingu. Allt eru þetta hins vegar verkefni sem taka tíma og því nauðsynlegt að einblína á aðgerðir sem hægt er að ráðast í strax. Gallinn er nefnilega sá að biðlund fólks er á þrotum og framtíð Samfylkingarinnar hefur aldrei komið. Borgarlína hefur verið á teikniborðinu í fimmtán ár, en er enn ófjármögnuð og þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um einstaka verkliði – svo sem Suðurlandsbraut – hafa fallið í grýttan jarðveg. Borgarlína Samfylkingarinnar er komin út í skurð og á meðan situr fólk fast í umferðinni. Sama má segja um leikskólana. Fyrir hverjar kosningar er því lofað að biðlistunum verði nú loksins útrýmt! Samt eru hátt í þúsund börn á biðlista á hverju hausti. Ekki í bæklingi Samfylkingarinnar Þéttingarstefnan er sömuleiðis komin á endastöð. Birtingarmyndirnar eru margar. Fólki líkar hvorki hönnun, né ljósvist þeirra steypuklumpahverfa sem risið hafa í borginni. Sumir hafa meira að segja vaknað einn morguninn með grænan vegg fyrir utan stofugluggann. Það var ekki í bæklingi Samfylkingarinnar. Á meðan blæs borgarkerfið út og stjórnlyndið læðist að æ fleiri þáttum hins mannlega samfélags. Ekkert er borginni óviðkomandi. Fánum hinna ýmsu þjóðríkja er flaggað við Ráðhúsið og borgarstarfsmenn senda íbúunum tilmæli um hvernig skuli halda barnaafmæli, eða hvort bjóða eigi upp á pylsur hjá hinum fjölmörgu stofnunum borgarinnar. Borgin eyðir tíma og fjármunum í verkefni sem eiga alls ekki að vera í hennar verkahring. Ryðjum aðskotahlutum úr bílastæðum strax Sjálfstæðismenn ætla að færa borgina aftur í áttina að sínu kjarnahlutverki. Við ætlum strax að hefja innleiðingu fjölbreyttra lausna í leikskólamálunum. Samgöngusáttmálann þarf að endurskoða strax og semja betur fyrir Reykjavík. Óþarfa hindrunum í umferð og aðskotahlutum úr bílastæðum á að ryðja strax úr vegi. Leggja á niður óþarfa ráð og nefndir og fækka millistjórnendum. Í kosningunum 16. maí getur fólk hafnað framtíðinni sem aldrei kom og kosið nýja Reykjavík. Borg þar sem einblínt er á lausnir sem hægt er að innleiða strax, svo einfalda megi hversdag borgarbúa. Um leið munum við leggja traustan grunn að sterkari, frjálsari og betur rekinni borg til framtíðar. Reykjavík þar sem fjölskyldur njóta betri þjónustu, atvinnulífið býr við hagstæðari skilyrði og skattfé íbúanna er nýtt af ábyrgð og skynsemi. Höfundur skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Guðjónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar