Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. apríl 2026 15:14 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri, Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Margrét Hjaltested bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar við undirritun samstarfssamnings um Púlsinn í dag. Stjórnarráðið Bráða- og viðbragðsteymið Púlsinn hefur tekið til starfa en markmið þess er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. „
Teymið er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu. Það er hluti af aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum,“ segir í fréttatilkynningu frá stjórnarráðinu. Púlsinn hefur aðsetur í Suðurmiðstöð Reykjavíkurborgar en starfsfólkið, sem er hópur reyndra sérfræðinga, flakkar á milli sveitarfélaganna eftir því sem aðstæður krefja. Starfsfólkið stígur inn í mál sem koma upp og kannar hvort hætta sé á frekara ofbeldi. Það var stofnað eftir 240 milljóna króna styrkveitingu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Vonir eru bundnar við að með því að koma fyrr að málunum og veita börnum sem beita ofbeldi stuðning sé hægt að draga úr líkum á að slík brot endurtaki sig. „Verkefnið er hluti af nauðsynlegum aðgerðum okkar gegn ofbeldi meðal barna. Markmið Púlsins er að flýta viðbrögðum við ofbeldismálum, skýra boðleiðir og styrkja samvinnu í sameiginlegu utanumhaldi okkar um börn og fjölskyldur. Við vitum að með því að grípa inn í snemma og með markvissum stuðningi er hægt að draga úr endurtekningu brota og fækka slíkum málum,“ er haft eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur, borgarstjóra og formanni stjórnar SHH.
Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglan Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira