Tókust á um Borgarlínuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. mars 2026 11:24 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Samsett Mynd Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Pétur Marteinsson, oddviti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, tókust á um Borgarlínuna í Bítinu á Bylgjunni. Hildur telur að endurskoða þurfi áætlunina frá grunni en Pétur bendir á að verkefnið sé þegar hafið og skiljanlegt sé að finna fyrir einhverjum vaxtaverkjum. Þau sammælast um að flýta þurfi Miklubrautargöngunum.
Hildur telur markmið með bættum samgöngum vera að koma fólki hraðar á milli staða. Hún telur stöðu mála hvað varðar samgöngur aldrei hafa verið eins slæma. „Fólk á að geta valið sér fararmáta og við eigum ekki að reyna að þröngva fólki í eitthvað mynstur sem það kærir sig ekki um. Þarna í samgöngumálum, eins og í öðrum málaflokkum borgarinnar, birtist okkur ákveðið stjórnlyndi þar sem menn vilja hafa vit fyrir fólki og segja því hvernig best og skynsamlegast er að koma sér á milli staða,“ segir Hildur. Markmið Sjálfstæðisflokksins séu að byggja upp nýtt, öflugt hraðvagnakerfi sem sé á sérakgreinum með upphituð biðskýli, tíðari ferðir og betri þjónustu. Hins vegar vilji flokkurinn draga úr áherslunni á að Borgarlínan sé í miðju akbrautanna og hafnar flokkurinn öllum þrengingum á almennri umferð. Sjá nánar: Samfylking stærst en Sjálfstæðisflokkur skammt undan Þar sem ekki sé hægt að byggja sérakreinar án þess að þrengja að umferð verði Borgarlínan í blandaðri umferð. „Hugmyndin um að Borgarlínuvagnarnir verði í miðjunni og bílaumferð til hliðar kallar á verulegt uppbrot á öllum götum á höfuðborgarsvæðinu með tilheyrandi kostnaði og auðvitað tafir á umferð á meðan. Við viljum, hvað þennan samgöngusáttmála varðar, þá viljum við flýta til að mynda Miklubrautargöngunum,“ segir Hildur. Vaxtaverkir á meðan framkvæmdir standa yfir Pétur bendir hins vegar á að verkefnið sé þegar hafið, byggt á samgöngusamningi sem Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, þáverandi forsætisráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi innviðaráðherra, undirrituðu árið 2019. Samningurinn var tekinn aftur upp árið 2024 og skrifaði Bjarni Benediktsson, þá orðinn forsætisráðherra, undir hann. „Ég held að þetta sé frábær samningur og við megum ekki taka hann upp núna og tefja þetta allt saman,“ segir Pétur. „Við þurfum líka að setja í samhengi við það að þetta er farið á fleygiferð. Það er náttúrlega byrjað að vinna með brú yfir í Kópavog, það er búið að tvöfalda Vesturlandsveginn og það er búið að tvöfalda Reykjanesbraut.“ Á meðan núverandi fasi er í gangi eru einhverjir vaxtaverkir að mati Péturs sem segir einnig að allt verði verra áður en það verði betra. „Þetta er stórt verkefni og það eru alls konar verkefni innan verkefnisins. Ég er alveg sammála Hildi, ég myndi vilja flýta Miklubrautargöngunum. Ég held að það sé eitt af þessum verkefnum sem bæði er mjög sýnilega skiljanlegt og ég held að bæti umferð, öryggi og ásýnd Reykjavíkur mjög mikið.“ Fjármunirnir komi úr vösum borgaranna Hildur gagnrýnir orð Péturs og segir að þrátt fyrir að bæjarstjórar á höfuðborgarsvæðinu, sem koma úr röðum Sjálfstæðisflokksins, hafi undirritað samgöngusáttmálann geti þeir verið ósammála ákvörðunum sem teknar eru í Reykjavík. „Svo er það hitt sem er mjög mikilvægt og mjög fáir skilja, það er mjög mikilvægt að fólk sé meðvitað um þetta. Það er gjarnan talað um að ríkið eigi að fjármagna 87,5 prósent af samgöngusáttmálanum og þess vegna eigum við að vera ægilega þakklát hérna á höfuðborgarsvæðinu að fá þetta fjármagn frá ríkinu,“ segir Hildur. „En veruleikinn er sá að rúmur helmingur af þessum fjármunum, 143 milljarðar, þeir koma ekkert frá ríkinu. Ríkið byrjar að innheimta það fé beint úr vösunum á fólki sem að ekur hér um götur borgarinnar af því hér á að fara innheimta veggjöld. Það á að fjármagna þessi verkefni samgöngusáttmálans.“ Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram frumvarp um stofnun innviðafélags sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra samgönguverkefna. Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að við vinnslu þess hafi verið framkvæmd greining og skoðað hvað hægt væri að lækka framlag ríkisins mikið ef sett yrðu „hófleg veggjöld“ á Hvalfjarðargöng. Tekið var fram að hægt væri að skoða innheimtu álíka veggjalda á Reykjanesbraut og Suðurlandsveg. Daði Már tók fram í viðtali á Vísi að það standi ekki til að setja á slík veggjöld. Hins vegar verða sett veggjöld á nýja Ölfusárbrú. Deilt um deiliskipulag Suðurlandsbrautarinnar Talið barst einnig að Suðurlandsbraut en í lok janúar var birt tillaga að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut. Til að mynda er gert ráð fyrir því að akreinar fyrir almenna bílaumferð verði að mestu leyti einbræðar og að bílastæðum fækki. Pétur telur að hágæða almenningssamgöngukerfi geti jafnvel aukið umferðina um Suðurlandsbrautina. „Borgarlínan eða strætóar munu flytja fleira fólk hingað sem gæti þá verið betra fyrir verslun. Aðstæður annars staðar eru þannig að við hágæðastoppistöðvar þá er minni þörf fyrir bílastæði. Þá blómstra viðskipti og fasteignaverð jafnvel hækkar,“ segir Pétur. Hildur tekur ekki undir orð Péturs. „Ég heyri að Pétur segi að þegar að hér er búið að þrengja að umferð og fjarlægja bílastæði og Borgarlína komin, þá muni það verða gríðarleg lyftistöng fyrir öll viðskipti hér á svæðinu,“ segir hún. „Hér eru í rekstri fyrirtæki sem eru bara með alls kyns vörur og þjónustu. Hér eru skurðstofur, hér er verið að selja stór heimilistæki og annað þar sem fólk er ekki að fara koma í almenningsvögnum eða á reiðhjóli að sækja þá þjónustu. Það er alveg ljóst.“
Bylgjan Bítið Borgarlína Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngur Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira