Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. mars 2026 10:34 Kristján Geir er framkvæmdastjóri Emessís. Samsett Framkvæmdastjóri Emmessís gefur lítið fyrir fréttir um að enginn rjómi sé í rjómaís þeirra. Umfjöllun um rjómaleysið sé byggð á misskilningi. „
Það virðist vera einhver misskilningur í gangi í þessari grein sem að okkur þótti leitt að hafa séð þarna og virðist hafa breiðst út,“ sagði Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Emessís í Reykjavík síðdegis í gær. Fyrr í vikunni var grein birt í Bændablaðinu þar sem greint var frá því að aðalhráefnið í Rjómaís frá Emmessís væri hvítur sykur, vatn og smjör en í Mjúkís hjá Kjörís væru aðalhráefnin hert kokosfita og sykur. Síðar var birt grein þar sem haft er eftir Kristjáni að ísinn sé sannarlega rjómaís. „Það er rjómi í okkar ís klárlega og svo erum við eitt fárra matvælafyrirtækja á Íslandi með FSCC-vottun. Hún tryggir það meðal annars að allar vörur uppfylli allar matvælareglugerðir á þeim markaði sem við erum að vinna á. Þannig að þetta eru ekki bara við að segja þetta heldur erum við með alþjóðlegar vottanir,“ segir hann. Tíu prósent mjólkurfita sé í Rjómaísnum sem sé viðmiðið til að hægt sé að kalla ísinn rjómaís. Smjörið, sem sé eitt aðalhráefnanna, er geymsluform á rjóma. „Þegar að rjómi er ofþeyttur þá breytist það í smjör og þetta er viðurkennd og mjög algeng aðferð við framleiðslu á rjómaís í heiminum,“ segir Kristján. „Þegar við erum að gera ís sem er hugsaður til að selja í stórmörkuðum, eins og Rjómaísinn er gerður, þá þarf hann að vera með ákveðið geymsluþol. Það þarf að uppfylla kröfur neytenda og við erum stöðugt að skoða hvernig við getum fækkað innihaldsefnum án þess að koma niður á gæðum vörunnar.“
Neytendur Matur Ís Matvælaframleiðsla Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira