Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Eiður Þór Árnason skrifar 20. mars 2026 21:44 Hópamyndun er nokkuð algeng í bílakjallaranum undir Höfðatorgi samkvæmt heimildum fréttastofu. Vísir/Vilhelm Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum.
Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt aðfaranótt þriðjudags ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins í fullum gangi og henni miði vel. Hún gaf ekki upp hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim sem er enn í haldi en hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á þriðjudag. Sjö voru upphaflega handteknir en samkvæmt lögreglu eru brotaþolar þrír. Rannsaka hvort þeir hafi verið í átökum vegna skuldar Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu aðfaranótt þriðjudags. Maður var lagður inn á gjörgæslu með þó nokkra áverka eftir hópárásina og liggur enn á sjúkrahúsi. Fimm karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna árásarinnar á þriðjudag. Fjórir voru úrskurðaðir í varðhald til dagsins í dag en einn í vikulangt varðhald. Farið var á vettvang árásarinnar í kvöldfréttum Sýnar á miðvikudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um tvo hópa að ræða sem lentu saman bílakjallaranum í Borgartúni. Samkvæmt upplýsingum var um einhvers konar uppgjör að ræða meðal aðila úr undirheimunum. Lögreglan rannsakar nú hvort átök hafi brotist út vegna skuldar og reynir að ná utan um hvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Eggvopni og kylfum var beitt við árásina. Þá var ökutæki ekið á þann sem slasaðist mest í árásinni.
Lögreglumál Reykjavík Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira