Hjálp, það á að breyta malbikinu mínu! Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 20. mars 2026 09:32 Það er dásamleg íslensk hefð að lýsa yfir yfirvofandi heimsenda í hvert skipti sem mála á nýja línu á malbik eða breyta vinstri beygju í hægri. Nýjasta útspilið í þessum efnum er Suðurlandsbrautin, sem Lárus vinur minn sér fyrir sér með hryllingi. Samkvæmt honum, og kannski fleirum sem lásu grein hans, er hönnun Borgarlínunnar svo mikið „stórslys“ að maður býst hreinlega við því að það sé hópur verkfræðinga sitjandi með höfuðið í greipum sér veltandi fyrir sér hvernig þeim hafi tekist að eyðileggja sjálfa siðmenninguna með hönnun strætó akreina. Við elskum að elska umferðarteppurnar okkar Við skulum vera hreinskilin: Suðurlandsbrautin er mikilvæg samgönguæð. Hún er staðurinn þar sem við eyðum dýrmætum tíma okkar á morgnana í að horfa á stuðarann á bílnum fyrir framan okkur og velta fyrir okkur lífinu og tilverunni. Og já, hún mun breytast. En sú hugmynd að það sé „stórslys“ að forgangsraða þúsundum manna í hágæða almenningssamgöngum fram yfir það að tryggja að allir komist í gegnum gatnamót á bílum á nákvæmlega jafn löngum tíma og það tók árið 1994, er í besta falli pínleg. Það er nefnilega dálítið sérstakt að kalla nútímalega hönnun stórslys, á meðan við horfum á núverandi kerfi hrynja undan eigin þunga á hverjum einasta degi. „Ekki snerta Suðurlandsbrautina!“ hrópa sumir, á meðan þeir hinir sömu sitja fastir í umferð á einmitt þessari sömu götu. Hugrökku vinstri beygjurnar Gagnrýnin snýst oft um að fólk þurfi að fara „krókaleiðir“ eða að það sé „flókið“ að rata. Hér virðist gengið út frá því að íslenskir ökumenn séu algjörlega ófærir um að læra á nýtt skipulag án þess að lenda í tilvistarkreppu og villu vegar. Ef ein vinstri beygja er tekin í burtu til að fækka ákeyrslum og auka öryggi, er því lýst eins og verið sé að rífa niður siðmenninguna. En kannski er það bara málið. Okkur finnst nefnilega rosalega gaman að dramatík. Það er miklu skemmtilegra að tala um „skipulagslegt sjálfsmorð“ en að ræða tölfræði um umferðaröryggi, betra loftslag eða þá staðreynd að borgin okkar getur ekki stækkað endalaust án þess að við endurhugsum það hvernig flæði borgarinnar verður í framtíðinni. Boðið í stórslysa-partý Ef það er „stórslys“ að byggja upp innviði sem geta flutt fleira fólk á styttri tíma, þá er ég kannski bara aðdáandi stórslysa. Ef það er „fyrirlitning á skynsemi“ að ætla að bjóða upp á aðra valkosti en að allir sitji einir í bíl á Suðurlandsbraut á 5 kílómetra hraða, þá er ég greinilega ekki mjög skynsamur. Við getum haldið áfram að mála skrattann á vegginn og berjast fyrir hverjum metra af malbiki eins og það sé heilagt land. Eða við getum viðurkennt að breytingar eru erfiðar, en nauðsynlegar. Suðurlandsbrautin mun breytast, umferðin mun haga sér öðruvísi og já, þú þarft kannski að læra nýja leið í vinnuna eða jafnvel nota almenningssamgöngur (GMA - e. OMG). En heimurinn fer ekki undir í leiðinni. Leyfum nú sérfræðingunum að klára hönnunina og gefum Borgarlínunni tækifæri áður en við pöntum sorgarklæðnaðinn. Það gæti nefnilega farið svo að þetta „stórslys“ verði það besta sem komið hefur fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar