Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 17. mars 2026 12:38 Borgarfulltrúarnir vilja hverfa frá hugmyndum um Borgarlínu en leggja þess í stað fram tillögur að aðgerðum til að stórefla stætisvagnakerfið. Vísir/Bjarni Tveir borgarfulltrúar sem klufu sig frá Sjálfstæðisflokknum vilja að hætt verði við borgarlínuverkefnið en þess í stað að stórefla strætókerfið. Þá vilja þeir hraða framkvæmdum á borð við Miklubrautargöng.
Þau Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon borgarfulltrúar, sem sitja sem óháðir fulltrúar í borgarstjórn, hafa lagt fram tillögu þess efnis fyrir borgarstjórnarfund í dag. Í tillögunni felst að ráðist verði í eflingu á strætisvagnakerfinu með sérstakri áætlun eins og að leggja hægrisettar forgangsakreinar fyrir strætisvagna á umferðarþungum stöðum þar sem vagnarnir verða helst fyrir töfum, úrbætur verði gerðar á biðskýlum og skiptistöðvum, umbætur gerðar á leiðakerfi, hröðun endurnýjunar vagnaflotans og að greiðslukerfinu verði skipt út fyrir annað og hraðvirkara kerfi. „Já, markmið tillögunnar er að rjúfa þá kyrrstöðu sem hefur verið í samgöngumálum í Reykjavík. Við viljum hverfa frá þeirri stefnu að það sé tafið fyrir umferð yfir í að það verði gripið til aðgerða sem virka. Við teljum að það eigi að hætta við þetta borgarlínuverkefni en þess í stað að stórefla núverandi strætókerfi. Nú, slík efling, hún yrði margfalt ódýrari heldur en borgarlínukerfið en myndi gera sama gagn. Það að efla strætókerfið væri líka miklu fljótlegra. Það er hægt að byrja bara á því strax á þessu ári en í stað þess að þurfa að bíða eftir borgarlínu í hálfan áratug eða svo,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Miðflokksins. Ágreiningur um Borgarlínu innan Sjálfstæðisflokks Hann var spurður hvort hann hefði ekki fundið nægan hljómgrunn fyrir þessar hugmyndir í sínum gamla flokki, Sjálfstæðisflokki. „Mér fannst ég mæta alveg góðum skilningi varðandi það að það þyrfti að efla núverandi strætókerfi. Hins vegar er því ekki að leyna að það var töluverður ágreiningur um Borgarlínuna. Ég og fleiri, við bentum á að borgarlínukerfið verður afar dýrt. Það mun kosta á milli 200 og 300 milljarða króna. Það verður ekki farið í það kerfi nema með því að hækka skatta verulega á borgarbúa. En ávinningurinn er hins vegar mjög óljós. Ávinningurinn af því að efla Strætó er hins vegar mjög ljós því það væri hægt að gera margt af því sem ætlunin er að gera með borgarlínu fyrir Strætó með miklu, miklu minni fjármunum.“ Hann var spurður þau Marta væru opin fyrir málamiðlunum. „Já, já, það má alltaf finna málamiðlanir og það hafa verið settar fram hugmyndir. Til dæmis hugmyndir sem hafa verið kallaðar létt borgarlína eða hraðvagnakerfi af ákveðnum sérfræðingum. Það gæti verið að mörgu leyti fín málamiðlun.“
Borgarlína Reykjavík Borgarstjórn Samgöngur Strætó Tengdar fréttir Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum. 6. mars 2026 19:37 Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Kjartan Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að andstæðingum borgarlínunnar í borgarstjórnarflokknum hafi verið bolað af lista fyrir komandi kosningar, eða færðir lengst niður. Þau Marta Guðjónsdóttir bókuðu á borgarstjórnarfundi á dögunum að réttast væri að hætta við verkefnið eins og það leggur sig. 5. mars 2026 12:22 „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Oddviti Framsóknar í Reykjavíkurborg segir fyrirhugað deiliskipulag Borgarlínunnar um Suðurlandsbraut augljóslega ekki ganga upp. Frekar eigi að byggja mislæg gatnamót og gera forgangsaakreinar fyrir strætó. 29. janúar 2026 21:01 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn og ganga til liðs við Miðflokkinn. Þau segjast telja Miðflokkinn mun líklegri til að vinna að meginmarkmiðum þeirra í borgarmálum. 6. mars 2026 19:37
Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Kjartan Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að andstæðingum borgarlínunnar í borgarstjórnarflokknum hafi verið bolað af lista fyrir komandi kosningar, eða færðir lengst niður. Þau Marta Guðjónsdóttir bókuðu á borgarstjórnarfundi á dögunum að réttast væri að hætta við verkefnið eins og það leggur sig. 5. mars 2026 12:22
„Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Oddviti Framsóknar í Reykjavíkurborg segir fyrirhugað deiliskipulag Borgarlínunnar um Suðurlandsbraut augljóslega ekki ganga upp. Frekar eigi að byggja mislæg gatnamót og gera forgangsaakreinar fyrir strætó. 29. janúar 2026 21:01