Ekki ein tomma en hvar eru aðgerðirnar? Telma Árnadóttir skrifar 8. mars 2026 17:32 Í stefnuræðu þann 10. Febrúar 2025 sagði forsætisráðherra okkar, Kristrún Frostadóttir að ofbeldi væri ein stærsta ógnin í lífi kvenna, að kynbundið ofbeldi væri faraldur sem hefði skelfilegar afleiðingar fyrir líf og heilsu kvenna, aðstandenda þeirra og samfélagið allt. Aðeins sjö klukkustundum áður sat Kristrún örfáum bekkjum aftan við mig í jarðarför Ólafar Töru, sem lést úr sjálfsvígi eftir langa baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Orð ræðunnar voru mikilvæg, þau voru ekki aðeins pólitísk yfirlýsing heldur áminning um raunveruleika sem margir þekkja allt of vel. Í ræðunni sagði forsætisráðherra, orðrétt; „Ríkisstjórnin hefur einsett sér að taka fast á kynbundnu ofbeldi og styrkja réttarkerfið”. En orð ein og sér uppræta ekki ofbeldi. Stjórnvöld hafa kynnt landsáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum sem ætlað er að bæta samhæfingu kerfa, efla forvarnir og styrkja stöðu þolenda. Slík stefnumótun er risastórt skref og án efa veitir þolendum ofbeldis von um viðurkenningu. En stefna á pappír er aðeins upphaf, engin breyting á sér stað fyrr en kerfið fer að virka fyrir þau sem þurfa á því að halda. Landsáætlun byggir meðal annars á skuldbindingum Íslands samkvæmt Istanbul samningnum sem á að samræma aðgerðir þvert á ráðuneyti, réttarkerfi og þjónustu við þolendur. Hún inniheldur 25 aðgerðir sem snúa að forvörnum, bættri málsmeðferð og aukinni samhæfingu milli stofnana. Þrátt fyrir metnaðarfulla stefnu hafa framkvæmdir ekki enn hafist að fullu. Drög Landsáætlunar voru sett í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember 2025 með umsagnarfrest til janúar 2026, síðan þá hefur málið verið áfram í vinnslu innan stjórnkerfisins. Áætlunin er hugsuð sem rammi fyrir aðgerðir á árunum 2026-2030, hún er enn á undirbúningsstigi og mun taka tíma að koma til framkvæmda. Er bilið á milli yfirlýsinga stjórnvalda og raunverulegra breytinga of stórt? Í umræðu um kynferðis- og heimilisofbeldi á Íslandi hefur ítrekað verið bent á veikleika í réttarkerfinu, krefjandi og langt ferli, aðeins til að sjá mál fellt niður jafnvel árum eftir skýrslutöku. Niðurstaða sem eykur vanmátt og vantraust gagnvart íslenska kerfinu. Þetta er ekki aðeins spurning um tölfræði eða stjórnsýslu heldur um traust. Þolendur upplifa ítrekað að réttarkerfið bregðist þeim og hefur það gífurleg áhrif á hvort einstaklingar treysta sér til að stíga fram og tilkynna brot. Þar liggur einn stærsti prófsteinn á árangur aðgerða stjórnvalda. Þegar stjórnvöld tala um að styrkja réttarkerfið þarf því að spyrja, hvaða breytingar séu raunverulega að eiga sér stað. Ganga rannsóknir kynferðisbrota hraðar fyrir sig nú en áður? Hefur stuðningur við þolendur aukist? Hafa úrræði í kerfinu verið efld svo að fólk upplifi að réttlæti sé raunsær möguleiki? Ef kynbundið ofbeldi er eins og forsætisráðherra orðaði það „ein stærsta ógnin í lífi kvenna“ þá hlýtur baráttan gegn því að vera eitt af brýnustu verkefnum samfélagsins. Það krefst ekki aðeins texta á blaði heldur markvissra og sýnilegra kerfisbreytinga. Faraldur án takmarkana Samkvæmt Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni WHO er skilgreining faraldurs; tilvist sjúkdóms, ákveðins heilsutengds atferlis eða annarra atburða sem varða heilsu fólks innan ákveðins samfélags eða landsvæðis, í tíðni sem er umfram það sem vænta má undir eðlilegum kringumstæðum. En ég spyr, ef kynbundið ofbeldi er eins og forsætisráðherra orðaði, faraldur, hvar eru aðgerðirnar til þess að vinna gegn honum? Hversu mörg kynferðisbrot þurfa að eiga sér stað svo faraldrinum verði settar takmarkanir? Hversu mörg andlát vegna afleiðinga kynbundins ofbeldis þurfa að verða svo faraldrinum verði lýst sem neyðarstigi? Orð Kristrúnar skipta máli, en til að orð verði að raunverulegri breytingu þurfa þau að fylgja eftir með aðgerðum sem þolendur finna fyrir í eigin lífi. Ef kynbundið ofbeldi er faraldur, þá er ekki nóg að viðurkenna hann, það þarf að tryggja að baráttan gegn honum sé raunverulega í forgangi, í lögum, í kerfinu og í daglegri framkvæmd réttlætisins. Ekki ein tomma Í sömu stefnuræðu sagði forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir „Ég vil byrja á að lýsa því yfir að þessi ríkisstjórn mun ekki gefa eina tommu eftir þegar kemur að mannréttindum hinsegin fólks, kvenna, jaðarsettra eða nokkurs manns. Það kemur ekki til greina“. Setningin er skýr en mannréttindi mælast ekki í yfirlýsingum heldur hvernig kerfið virkar fyrir fólk sem þarf á því að halda. Ef þolendur upplifa enn langa málsmeðferð, óvissu og kerfi sem bregst seint við, vaknar eðlilega spurning hvort kerfið hefur í raun styrkst. Að gefa ekki eina tommu eftir í mannréttindum þýðir ekki aðeins að verja þau í orði heldur að tryggja að þau séu raunveruleg í framkvæmd. Þar liggur áskorunin og þar mun árangur loforða stjórnvalda á endanum ráðast. Ef á ekki að gefa tommu eftir, hvað réttlætir niðurskurð á fjármögnun til félagasamtaka sem styðja þolendur á sama tíma og þörfin fyrir þjónustu þeirra eykst? Þolendur ofbeldis þurfa ekki fleiri orð, þeir þurfa kerfi sem virkar. Stjórnarráðið. Landsáætlun um aðgerðir við kynbundnu ofbeldi gegn konum. https://www.stjornarradid.is/verkefni/mannrettindi-og-jafnretti/jafnretti/landsaaetlun-um-adgerdir-vid-kynbundnu-ofbeldi-gegn-konum/ Stjórnarráðið. Félags- og húsnæðismálaráðherra veitir 60 milljónum krónum til að styðja við þolendur ofbeldis. https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/11/26/Felags-og-husnaedismalaradherra-veitir-60-milljonum-krona-til-ad-stydja-vid-tholendur-ofbeldis/ Höfundur er nemi í félagsráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynbundið ofbeldi Mest lesið Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar