„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 7. mars 2026 22:15 „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel. „Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það bezta sem þið getið gert.“ Talsvert hefur verið rætt um það á liðnum árum og ekki sízt að undanförnu, í röðum þeirra sem vilja Íslandi í Evrópusambandið, að ekki sé hægt að taka afstöðu til málsins nema með því að sækja um inngöngu og „fá samning á borðið.“ Kíkja í pakkann eins þeir hafa kallað það. Þetta hefur reyndar þótt nokkuð sérstakur málflutningur í ljósi þess að þeir sem boðið hafa upp á hann hafa í flestum tilfellum sjálfir fyrir löngu tekið einarða afstöðu með inngöngu í Evrópusambandið. Talað hefur einnig verið mikið af þeim um að einungis sé um að ræða viðræður og varla saki að spjalla við Evrópusambandið. Hins vegar er það alls ekki svo að um einfalt spjall sé að ræða heldur umsóknarferli sem fyrst og fremst gengur út á aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins samhliða þeim. Það yrði að baki þegar kosið yrði um samning. Þetta kemur skýrt fram í gögnum sambandsins og er enn fremur reynsla ríkja sem sótt hafa um inngöngu í það til þessa: „Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið í heild," segir til að mynda á vefsíðu Evrópusambandsins. „Ísland mun þurfa að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf Evrópusambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan sambandsins krefst. […] Stjórnsýsla Íslands er lítil. Hjá stjórnarráðinu starfa um 700 opinberir starfsmenn og það samanstendur af tíu ráðuneytum. […] Ráðuneytin eru lítil og hafa á bilinu 26 til 214 starfsmenn,“ segir í öðru skjali í tengslum við umsóknina um inngöngu 2009. Forystumenn Evrópusambandsins hafa einnig hafnað talinu um lokaða pakkann. Til dæmis Olli Rehn, þáverandi ráðherra stækkunarmála sambandsins, í Morgunblaðinu 10. september 2009, spurður hvort spilin yrðu loks lögð á borðið af hálfu þess og upplýst hvað væri í boði eftir að sótt hafði verið um inngöngu: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk sambandsins og meginreglur þess.“ Hins vegar hafa Evrópusambandssinnar hafnað þessu. Með öðrum orðum vilja þeir meina að Evrópusambandið sé að segja ósatt eða hafi í bezta falli ekki vit á málinu. En eru það þá meðmæli með því að ganga í sambandið ef ekkert er að marka það sem þaðan kemur? Fyrr í dag sagði til dæmis Dóra Magnúsdóttir, ritari Evrópuhreyfingarinnar, að ef einhver segði málið snúast um aðlögun að Evrópusambandinu væri það rangt. Sambandið heldur því fram. Er það að ljúga? Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Danmörk Evrópusambandið Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar