Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 3. mars 2026 13:02 Aðilar vinnumarkaðarins gerðu hóflega langtímakjarasamninga árið 2024 með það að markmiði að stuðla að verðstöðugleika og lækkun vaxta. Sameiginleg sýn var að það væri besta leiðin til að auka kaupmátt launafólks. Verðbólga fór lækkandi í kjölfar samninganna og hefur undanfarið ár sveiflast í kringum 4% en fer nú vaxandi á ný og mældist 5,2% í bæði janúar og febrúar. Verðbólguhorfur hafa versnað og vextir eru enn allt of háir. Illa gengur að ná böndum á verðbólguna þó að hægt hafi á hækkun húsnæðiverðs. Fórnarkostnaðurinn er aukið atvinnuleysi sem spáð er að muni aukast enn frekar á næstu misserum. Talsverð umræða hefur verið um hver beri ábyrgð á stöðunni, en minna hefur verið rætt um hvernig verðbólga og vextir bitna með ólíkum hætti á fólki. Staða launafólks Lífskjör á Íslandi eru almennt góð og fara víða batnandi. Utanlandsferðir og aukin kortavelta sýna að hátt vaxtastig hefur ekki dregið úr neyslu stórra hópa. Áhrifin eru hins vegar mikil á lágtekjuhópa og fólk sem á erfitt með að ná endum saman. Könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins – frá 2025 sýnir að um 30% launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB nær ekki endum saman. Í þeim hópi eru margir innflytjendur og einstæðir foreldrar. Þessi hópur er oftar í leiguhúsnæði, ber þunga byrði vegna matar-, húsnæðis- og samgöngukostnaðar og þarf frekar að reiða sig á dýr skammtímalán. Á sama tíma hafa hækkanir á nauðsynjavörum, svo sem húsnæði, mat, rafmagni og hita, verið meiri en kjarasamningsbundnar launahækkanir stórra hópa. Hver er vandinn? Í umræðunni um verðbólgu er oft vísað til launahækkana sem helsta orsakavaldsins, en síður rætt um undirliggjandi veikleika hagkerfisins, svo sem markaðsbrests á húsnæðismarkaði, fákeppni, innviðaskuld og veika tekjustofna hins opinbera. Eignaójöfnuður hefur aukist á undanförnum árum. Á meðan stór hópur launafólks býr við óöryggi á húsnæðismarkaði hefur stóreignafólk aukið neyslu og beint fjárfestingum sínum í auknum mæli í fasteignir, sem hefur ýtt undir verðhækkanir á íbúðamarkaði. Áhrif peningastefnunnar, hárra vaxta, eru hins vegar mikil á skuldsett heimili og lágtekjuhópa. Ríkisstjórnin hefur ekki komið með aðgerðir til að milda þessi áhrif og ekki sýnt vilja til að láta hátekjufólk og stóreignafólk leggja sitt af mörkum til verðstöðugleika. Þvert á móti á meðalið að vera áframhaldandi aðhald og niðurskurður í ríkisútgjöldum sem kemur verst við almennt launafólk sem nú þegar ber mestar byrðar af verðbólgunni. Fákeppni einkennir flesta neytendamarkaði hér á landi s.s. matvöru-, olíu- og fjármálamarkað, sem endurspeglast í verðlagi. Þessi fyrirtæki hafa fæst lagt sitt af mörkum til þess að stuðla að því að markmið kjarasamninga um verðstöðugleika og lægri vexti náist. Á sama tíma birtast afleiðingar vanfjármögnunar innviða í aukinni gjaldtöku, til dæmis vegna vegakerfisins. Hækkanir á rafmagni og hita eru raktar til fjárfestingarþarfar, þótt veitufyrirtæki greiði eigendum sínum arð. Þetta endurspeglar veikleika í tekjugrunni ríkis og sveitarfélaga sem skila sér í auknum álögum á heimili og fyrirtæki og ýtir undir verðbólgu. Hvernig náum við markmiðum kjarasamninga? Kjarasamningar eru uppsegjanlegir mælist verðbólga 4,7% eða hærri í ágúst 2026. Launafólk gerði hóflega samninga í trausti þess að fyrirtæki myndu sýna aðhald í verðlagningu og að stjórnvöld myndu beita þeim tækjum sem þau hafa yfir að búa. Sú hefur ekki orðið raunin og að óbreyttu er kjarasamningum teflt í tvísýnu. Stuðningur stjórnvalda, svo sem barnabætur og húsnæðisbætur, hefur rýrnað að raungildi og víða hafa leikskólagjöld og fasteignagjöld hækkað verulega. Áhrifin lenda fyrst og fremst á láglaunafólki og barnafjölskyldum — sama hópnum og hefur borið þyngstu byrðarnar af verðbólgunni. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að ná jöfnuði í ríkisfjármálum og samkvæmt stefnuyfirlýsingu sinni að efla félagslega innviði og uppræta fátækt. Þeim markmiðum verður ekki náð með áframhaldandi aðhaldsaðgerðum í velferðarkerfinu heldur með styrkingu tekjustofna. Finnbjörn Hermannsson er forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Verðlag ASÍ Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar