Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Lovísa Arnardóttir skrifar 3. mars 2026 08:52 Eyþór gagnrýnir Hafnarfjarðarbæ fyrir að hundsa niðurstöðu dómsins. Aðsend Verkalýðsfélagið Hlíf leitar nú starfsfólks hjá Hafnarfjarðarbæ sem hefur ekki fengið greidda desember-eða orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningi. Verkalýðsfélagið stefndi bænum vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanna og vann málið í júní í fyrra. Verkalýðsfélagið segir bæinn hundsa dóminn og ætlar með fleiri slík mál fyrir dómstóla.
Í tilkynningu frá Hlíf segir að félagið hafi í nóvember árið 2024 stefnt Hafnarfjarðarbæ vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanns sem hafði verið ráðinn í tímavinnu og starfaði samkvæmt ráðningarsamningi frá 20. september 2019, þar til í júlí 2024. Persónuuppbætur eru desemberuppbót og orlofsuppbót. Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness frá því í júní er Hafnarfjarðarbæ gert að greiða starfsmanninum persónuuppbætur aftur í tímann, auk málskostnaðar. Bærinn áfrýjaði dómnum en Landsréttur tók málið ekki fyrir og því segir í tilkynningu Hlífar að þau verði að líta svo á að um endanlega niðurstöðu sé að ræða. Fá ekki greidda orlofs- eða desemberuppbót Á grundvelli dómsins eigi þeir starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sem starfa í tímavinnu og eftir kjarasamningi SGS og SÍS, en hafa ekki fengið greiddar persónuuppbætur rétt á því að fá greiddar persónuuppbætur á tímabilinu 1. desember 2020 til marsloka 2024. Félagið hafi fengið þau svör frá bænum að þau telji dóminn rangan og ætli ekki að una honum. Því segir í tilkynningu Hlífar að þau eigi ekki annarra kosta völ en að leita uppi annað fólk sem ekki hefur fengið greidda sína uppbót og fara með mál þeirra líka fyrir dómstóla. „Við teljum engar líkur á því að dómurinn skipti um skoðun þegar önnur sambærileg mál eru tekin fyrir, þannig að líklegt verður að telja að Hafnarfjarðarbær þurfi að greiða talsverða fjármuni vegna þessa, ekki vegna þess sem við teljum bæinn skulda viðkomandi einstaklingum, heldur einkum vegna málskostnaðar, sem slagaði hátt í milljón í því máli sem lokið er,“ segir í tilkynningunni. Sífellt fleiri mál sem þurfi að leysa með aðstoð lögfræðinga Eyþór Árnason, formaður Hlífar, segir að það hljóti að teljast tíðindi að þriðja stærsta sveitarfélag landsins telji sig ekki þurfa að fylgja leiðsögn dómstóla. „Annars endurspeglar þetta þá auknu hörku í garð almenns launafólks sem við teljum okkur verða vör við hjá Hafnarfjarðarbæ og mannauðsdeildinni. Sífellt fleiri mál, sem okkur þykja liggja í augum uppi, eru ekki leyst fyrr en félagið er komið með lögfræðinga í að sinna þeim,“ segir Eyþór. Verkalýðsfélagið Hlíf kallar eftir því að Hlífarfólk sem hefur unnið samkvæmt tímavinnusamningum á tímabilinu frá 1. desember 2020 til marsloka 2024 og ekki fengið greiddar persónuuppbætur gefi sig fram við félagið, í síma 510 0800, eða með tölvupósti á hlif@hlif.is.
Hafnarfjörður Kjaramál Dómsmál Stéttarfélög Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira