Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Lovísa Arnardóttir skrifar 28. febrúar 2026 20:03 Starfsmenn hafa þurft að glíma við margskonar áskoranir á spítalanum síðustu mánuði. Vísir/Viktor Freyr Torfi Fjalar Jónasson, hjartalæknir og eiginmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, segist aldrei hafa átt í neinum átökum eða árekstrum við Hildigunni Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. „
Ég hef aldrei nokkurn tímann átt í einhverjum átökum eða árekstrum við Hildigunni Svavarsdóttur. Ég hef ekkert meira um málið að segja og er að sjálfsögðu enginn aðili að því,“ segir Torfi Fjalar í skriflegu svari til fréttastofu. Tilefni fyrirspurnar fréttastofu til Torfa Fjalars um árekstra við Hildigunni er viðtal við Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformann Framsóknarflokksins, í Bítinu á Bylgjunni fyrir viku síðan, föstudaginn 20. febrúar. Þar gaf Ingibjörg í skyn að Torfi hefði átt í einhverjum átökum eða árekstrum við Hildigunni áður en hún sagði svo af sér í kjölfar þess að tilkynnt hafði verið að staðan yrði auglýst. Téða árekstra hefði mátt rekja til uppsagnar á ferliverksamningum við spítalann síðasta haust. Torfi Fjalar hafi verið einn þeirra sem hafi verið með slíkan samning og því tapað á því að samningunum yrði sagt upp. Á myndinni eru þau sem skipuðu framkvæmdastjórn spítalans þegar Hildigunnur var við stjórn. Frá vinstri, Helgi Þór Leifsson, framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu, Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu, Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri, Hulda Sigríður Ringsted, framkvæmdastjóri hjúkrunar, Ragnheiður Halldórsdóttir - framkvæmdastjóri lækninga og Erla Björnsdóttir - framkvæmdastjóri mannauðssviðs sem er starfandi forstjóri. Sjúkrahúsið á Akureyri. Samkvæmt heimildum fréttastofu lagði Torfi Fjalar fram vantrauststillögu á fundi læknaráðs spítalans í október í fyrra á hendur framkvæmdastjórn spítalans en dró hana svo til baka. Tillagan var því aldrei tekin fyrir. Hildigunnur sat í framkvæmdastjórn spítalans ásamt framkvæmdastjórum sviða spítalans. Alma vanhæf Alma Möller, eiginkona Torfa og heilbrigðisráðherra, lýsti sig vanhæfa í umfjöllum um uppsögn samninganna vegna tengsla sinna við Torfa. Í frétt mbl.is þann 8. október í fyrra kom fram að Alma hefði greint frá því á Alþingi í ræðu að hún myndi ekki koma að umfjöllun um uppsögn ferliverksamninganna vegna skyldleika við einn þeirra lækna sem starfa á sjúkrahúsinu og að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, hefði verið settur staðgengill heilbrigðisráðherra í málinu. Fjallað var þó um það mánuði síðar, 24. nóvember, á vef Akureyri.net að Alma hefði ætlað að fara norður til að funda með stjórnendum spítalans en eftir að tilkynnt var um uppsögn samninganna sögðu nokkrir læknar upp störfum á spítalanum. Fjallað var um það á Vísi líka. Mánudaginn 16. febrúar var svo greint frá því að Hildigunnur hefði óskað eftir því að láta samstundis af störfum þegar það lá fyrir að auglýsa ætti forstjórastöðuna að loknu skipunartímabili hennar. Hildigunnur segist ekki vilja tjá sig um þetta mál og vísar á starfandi forstjóra, Erlu Björnsdóttur. Talsverðar áskoranir á sjúkrahúsinu Erla segir í skriflegu svari til fréttastofu að undanfarið ár hafi áskoranir verið talsverðar á sjúkrahúsinu. „Rétt er að taka fram að verktakasamningum um ferliverk hefur ekki verið sagt upp eins og hefur komið fram í fjölmiðlum, tekin var ákvörðun um að fresta þeirri ákvörðun fram í maí. Nú er að störfum starfshópur á vegum SAk sem vinnur að tillögum með það að markmiði að skilgreina hvað gæti komið í stað verktakasamninga um ferliverk,“ segir Erla. Auk þess hafi rakaskemmdir í stórum hluta húsnæðisins verið mikil áskorun. „Þar sem fara hefur þurft í verulegar endurbætur á um 3000 fm. af okkar húsnæði er unnið að endurbótum en þetta hefur haft í för með sér talsverðar tilfæringar innanhúss.“ Sjá einnig: Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Þá hefur einnig verið fjallað um það að síðustu áramót hafi endurhæfingardeild spítalans verið lokað um helgar. Spítalinn sendi frá sér ákall vegna þess um mönnun í desember og sagði þá að nauðsynlegt væri að rýna í starfsemina. Hvað varðar starfslok Hildigunnar segist Erla ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna eða um vantraustsyfirlýsinguna en að framkvæmdastjórnin hafi átt afar gott og farsælt samstarf við hana. „Framlag hennar til SAk er ómetanlegt og það er mikill missir af henni.“ Staða forstjóra auglýst Heilbrigðisráðuneytið auglýsti stöðu forstjóra í gær og er umsóknarfrestur til 23. mars. Í auglýsingu segir að skipað verði í stöðuna til fimm ára, frá 1. júní 2026. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítalans. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk. Þá segir í auglýsingu um sjúkrahúsið að það sé kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annist sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfi í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Heilbrigðismál Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Manna þurfi átta stöðugildi til að halda óbreyttri starfsemi Manna þarf átta stöðugildi til að hægt sé að halda endurhæfingarstarfsemi á Kristnesspítala óbreyttri. Starfsfólkið segir lokunina varða hagsmuni almennings og biðla til stjórnvalda að stíga inn í. Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segist eiga í samtali við starfsfólkið um mögulegar lausnir. 4. desember 2025 13:41 Sjúkrahúsið geti ekki sinnt lögbundinni skyldu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stjórnendur Sjúkrahússins á Akureyri hafa sent út neyðaróp vegna stöðu mála. Heilbrigðisráðherra er á leið norður í land til að funda með starfsfólkinu. 24. nóvember 2025 20:34 Læknar á sautján sólarhringa bakvakt Formaður Læknafélagsins leggur til að læknum verði boðin sérkjör fyrir að starfa utan höfuðborgarsvæðisins til að laða að starfsfólk. Erfitt ástand hafi skapast á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna læknaskorts. Dæmi séu um að fólk sé látið standa bakvakt í sautján sólarhringa samfleytt. 22. nóvember 2025 21:12 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Manna þurfi átta stöðugildi til að halda óbreyttri starfsemi Manna þarf átta stöðugildi til að hægt sé að halda endurhæfingarstarfsemi á Kristnesspítala óbreyttri. Starfsfólkið segir lokunina varða hagsmuni almennings og biðla til stjórnvalda að stíga inn í. Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segist eiga í samtali við starfsfólkið um mögulegar lausnir. 4. desember 2025 13:41
Sjúkrahúsið geti ekki sinnt lögbundinni skyldu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stjórnendur Sjúkrahússins á Akureyri hafa sent út neyðaróp vegna stöðu mála. Heilbrigðisráðherra er á leið norður í land til að funda með starfsfólkinu. 24. nóvember 2025 20:34
Læknar á sautján sólarhringa bakvakt Formaður Læknafélagsins leggur til að læknum verði boðin sérkjör fyrir að starfa utan höfuðborgarsvæðisins til að laða að starfsfólk. Erfitt ástand hafi skapast á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna læknaskorts. Dæmi séu um að fólk sé látið standa bakvakt í sautján sólarhringa samfleytt. 22. nóvember 2025 21:12