Lest í stað Borgarlínu? Runólfur Ágústsson, Orri Björnsson og Kjartan Már Kjartansson skrifa 26. febrúar 2026 09:32 Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á undanförnum árum snúist að verulegu leyti um Borgarlínu. Það er skiljanlegt. Þörfin fyrir betri samgöngur, styttri ferðatíma og aukna burðargetu í samgöngukerfinu er augljós, og álag á helstu stofnæðum hefur lengi verið vaxandi áskorun þannig að daglegur veruleiki of margra okkar er að sitja föst í umferðinni. Einmitt þess vegna er mikilvægt að við skoðum fleiri leiðir en Borgarlínu, sérstaklega á leggnum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar en þessi tenging er ein sú mikilvægasta á höfuðborgarsvæðinu — fyrir íbúa, þjónustu, atvinnulíf. Þegar rætt er um stórar samgönguframkvæmdir á slíkum legg er eðlilegt að spyrja einfaldra spurninga: Hvað skilar mestum ávinningi? Hvað eykur getu kerfisins mest? Hvaða lausn veldur minnstu raski á framkvæmdatíma og hvaða lausn er áreiðanlegust til lengri tíma? Betri samgöngur Stórar framkvæmdir þurfa að skila raunverulegum ávinningi. Markmiðið hlýtur að vera að bæta flæði og gera ferðatíma styttri og fyrirsjáanlegri — bæði fyrir þá sem nýta almenningssamgöngur og þá sem vilja eða þurfa að vera á bíl. Svo má ekki gleyma því að framkvæmdatíminn sjálfur skiptir hér einnig máli. Þegar unnið er á eða við stofnæðar getur raskið haft víðtæk áhrif á daglegt líf, flæði umferðar og þjónustu. Íbúar finna strax fyrir breytingum þegar ein akrein lokast tímabundið eða þegar truflanir verða á helstu leiðum. Hætt er við því að lagning Borgarlínu, ofanjarðar á annarri stofnbrautinni milli Reykjavíkur og Hafnafjarðar, loki eða takmarki umferð um þær árum saman á meðan á framkvæmdum stendur og hneppi íbúa þar nánast í stofufangelsi á meðan. Fluglest með borgarlínu Hér eigum við að skoða nokkurra ára gömul áform um fluglest milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar og það hvort hægt sé að nýta það verkefni og þá vinnu til að sameina við áform um Borgarlínulegg til Hafnarfjarðar, auk þess að tengja Reykjanes og höfuðborgarsvæðið saman í eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Lestarlína undir borginni er lausn sem getur boðið upp á meiri burðargetu, meiri hraða, meiri fyrirsjáanleika og stöðugri ferðatíma, óháð umferð og veðri. Slík getur tengt saman kjarna svæðisins með skýrum hætti og skapað innviði sem standa í áratugi. En kannski er stærsti möguleikinn sá að með réttri nálgun er hægt að sameina tvö markmið í einu kerfi: borgarlest sem þjónar daglegum ferðum innan höfuðborgarsvæðisins og lest sem tengir borgina við Reykjanesbæ og Keflavíkurflugvöll. Með því að byggja lestarlínu í göngum undir borginni með tvöföldum teinum verður línan ekki aðeins tenging fyrir ferðamenn til og frá flugvellinum, heldur hluti af daglegu samgöngukerfi borgarbúa og íbúa á Reykjanesi. Tíðni ferða skiptir þar sköpum: þegar kerfi er nógu þétt og áreiðanlegt verður það raunhæfur valkostur sem fólk getur treyst á í vinnu, skóla og daglegum erindum. Hér er ótalið að lest í göngum léttir á bílaumferð um stofnbrautir á yfirborði, en þrengir ekki að þeim eins og Borgarlína. Samgöngumiðstöð í Hafnarfirði Staðsetning stöðva er síðan lykilatriði. Til að almenningssamgöngur virki í reynd þarf leiðin að tengja saman þá staði sem fólk fer á milli á hverjum degi: miðkjarna, þjónustumiðstöðvar og helstu áfangastaði. Á línunni væri eðlilegt að skoða stöðvar á borð við miðbæ Hafnarfjarðar, Garðatorg, Smáralind og Kringluna. Endastöðvar borgarlestar ættu að vera samgöngumiðstöð í Hafnarfirði og við BSÍ, þar sem tengingar við helstu þjónustu-, mennta- og heilbrigðissvæði eru sterkar. Á suðurendanum ættu að vera stöðvar í Vogum og Reykjanesbæ með endastöð undir komu- og brottfararsölum flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Að lokum er eðlilegt að flugfarþegar vilji í mörgum tilvikum hraðari ferð án millistoppa. Það er hægt að leysa með því að bjóða upp á harðlest (express) á annatímum að morgni og síðdegis, til dæmis frá BSÍ eða Kringlunni beint til Keflavíkurflugvallar. Þannig má byggja kerfi sem þjónar daglegum ferðum borgarbúa með stoppum, en býður jafnframt hraðari ferð þegar það skiptir máli. Þetta er algeng nálgun í stærri borgum þar sem sama kerfi þjónar fleiri en einum tilgangi. Dæmi um þetta er Flugtoget í Osló. Fjárfesting fyrir fjöldann En hvað gæti borgarlest sem þessi kostað? Kostnaðarauki umfram þær áætlanir sem liggja fyrir varðandi fluglest, er vegna tvöföldunar jarðganga frá samgöngumiðstöð í Hafnarfirði að BSÍ þar sem einföld göng voru áður áformuð og fleiri lestarvagna. Í þessu sambandi skulum við hafa í huga að innviðafjárfesting í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu eru ekki síður mikilvæg en á landsbyggðinni. Áformuð Fjarðaheiðagöng áttu að kosta 50 milljarða króna og átti að þjóna tiltölulega fáum. Hér er um að ræða framkvæmd sem þjónar hundruðum þúsunda og yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar. Alvöru samgöngubætur Niðurstaðan er einföld: Þegar við horfum til framtíðarsamgangna frá miðborg Reykjavíkur til Hafnafjarðar er skynsamlegt að meta hvort lest í göngum geti skilað meiri burðargetu, styttri ferðatíma, meiri fyrirsjáanleika og sterkari langtímaávinningi en fyrirhuguð Borgarlína. Ef við ætlum að ráðast í stórar fjárfestingar í samgöngum er eðlilegt að velja lausn sem bætir heildargetu kerfisins og byggir upp innviði sem standast framtíðarþörf. Slík nálgun er þess virði að taka alvarlega og skoða með opnum huga— með hagsmuni íbúa, atvinnulífs og samfélagsins alls í forgrunni. Heildstæð endurhugsun á samgöngum milli Reykjavíkur, Hafnafjarðar, Reykjanesbæjar og Keflavíkurflugvallar er nauðsynleg og tímabær. Runólfur Ágústsson, stjórnarmaður í Fluglestinni þróunarfélagi ehf.Orri Björnsson, oddviti D-listans í HafnarfirðiKjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Runólfur Ágústsson Borgarlína Samgöngur Reykjanesbær Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri Björnsson Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun