Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn Bjarki Sigurðsson skrifar 19. febrúar 2026 12:51 Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ánægjulegt að ríkisstjórnin hafi fundið hagfræðing sem styður umdeilt almannatryggingafrumvarp að hluta en að svara þurfi hvers vegna svo margir málsmetandi menn og hagsmunasamtök eru á móti frumvarpinu. Hingað til hafi bara tveir menntaðir hagfræðingar stutt frumvarpið, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.
Áfram var deilt um almannatryggingafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á þingi í dag. Stjórnarandstaðan hefur varað við mögulegum afleiðingum frumvarpsins, þá sérstaklega svokölluðum tvöföldum lás sem myndi leiða til tvöfaldrar hækkunar bóta í verðbólguskoti. Meingallað frumvarp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að áfram bættist í hóp málsmetandi gagnrýnenda á frumvarpið. „Ætlar ríkisstjórnin að halda því fram að allt þetta málsmetandi fólk sé á móti því að bæta kjör öryrkja og eldri borgara. Nei, auðvitað ekki. Ekki frekar en við hér í stjórnarandstöðunni. Þau, rétt eins og við Sjálfstæðismenn, sjá að þetta frumvarp er meingallað og nær ekki því markmiði sem ríkisstjórnin er hér að reyna að leggja áherslu á,“ segir Guðrún. Þriðji hagfræðingurinn fannst Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, svaraði því að Guðrún ætti að lesa færslu Gylfa Magnússonar hagfræðings þar sem hann segir frumvarpið ekki eiga eftir að stefna fjárhag ríkisins í hættu. „Það er nú ánægjulegt að ríkisstjórninni hafi tekist að finna einn. Að finna einn hagfræðing, sem er sammála henni en eingöngu að hluta. Því Gylfi Magnússon tók fram í þessari grein að þetta frumvarp væri óljóst og það þyrfti að skýra það betur. Ég held að hæstvirtur ráðherra ætti að taka þau orð til sín,“ segir Guðrún.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Sjálfstæðisflokkurinn Eldri borgarar Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira