„Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 20:48 Reykjavíkurleiðin, leikskólaleiðin í Reykjavík, verður kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna Vísir/Vilhelm Með nýju Reykjavíkurmódeli í leikskólamálum gætu leikskólagjöld lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira. Markmiðið er meðal annars að bæta mönnun, starfsaðstæður og faglegt starf á leikskólum. Oddviti Vinstri grænna segir frekari aðgerðir í farvatninu í leikskólamálum, staðan undanfarin ár hafi verið óboðleg. Formaður Samtaka foreldra leikskólabarna segir vonbrigði að borgaryfirvöld varpi með þessu frekara samviskubiti yfir á foreldra.
Fulltrúar borgarstjórnarmeirihlutans kynntu í dag nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum. „Við erum að boða endurgjaldslausan tíma fyrir börn fjölskyldna í 36 stundir. Svo höfum við innleitt nýja afsláttarflokka sem taka betur mið af raunverulegum aðstæðum fólks,“ segir Líf Magneudóttir, oddviti VG sem leiddi stýrihóp borgarinnar í leikskólamálum. Gjald sveiflast eftir tekjum, tímafjölda og systkinaafslætti Þá á að skapa hvata til að fá foreldra til að skrá raundvalartíma barna sinna. Tökum dæmi um einstætt foreldri með eitt barn og á bilinu 670 þúsund til 1,084 milljónir krónur í tekjur á mánuði sem þarf að nýta hámarksdvalartíma, eða 42,5 klukkustundir á viku. Viðkomandi mun miðað við þessar forsendur greiða rúmar 34 þúsund krónur á mánuði í Reykjavíkurmódelinu sem er tæpum 8.600 krónum meira en í núverandi kerfi. Foreldri í sömu stöðu sem hins vegar nýtir aðeins 36 klukkustundir á viku greiðir tæpar 15300 krónur á mánuði, það er aðeins fæðisgjald, sem er ríflega 7.600 minna en viðkomandi greiðir á mánuði í núverandi kerfi. Ofan á þetta bætist kostnaður vegna skráningardaga sem nemur 5000 krónum á dag. Þannig myndi nýting þriggja skráningardaga í dymbilviku til dæmis kosta 15.000 krónur aukalega í páskamánuðinum.Ef litið er til sambúðarfólks með 1,5 milljónir eða meira á mánuði í samanlagðar tekjur og tvö börn lítur dæmið svona út, að teknu tilliti til systkinaafsláttar: Kostnaður á mánuði miðað við hámarksdvalartíma myndi í þessu tilfelli hækka um hátt í 13 þúsund á mánuði, en sambúðarfólk með sömu tekjur sem nýtir aðeins 36 tíma á viku myndi borga rúmum 18 þúsund krónum minna en þau gera nú. Nýr lokunardagur skerðing á þjónustu Reykjavíkumódelið felur ekki aðeins í sér breytingar á gjaldskrá, heldur er til að mynda einnig lögð aukin áhersla á að efla íslenskukunnáttu starfsfólks og lokunardögum verður fjölgað um einn. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, var borgarstjóri þegar vinnan sem Reykjavíkurmódelið byggði á var sett af stað. Hann segir margt gott í tillögum meirihlutans þótt annað mætti betur fara að hans mati.Vísir/Vilhelm Albína Hulda Pálsdóttir, formaður Samtaka foreldra leikskólabarna, telur Reykjavíkurmódelið sem kynnt var í dag standi ekki undir væntingum foreldra. „Vonbrigði að meirihlutinn í borginni ætli að velta meiri fjárhagslegum álögum og samviskubiti yfir á foreldra sem eru þegar bara að reyna að gera sitt besta í erfiðum aðstæðum. Enginn á svona mikið frí,“ segir Albína, og vísar þar til þess að alls séu lokunardagar á leikskólum fleiri en sem nemur lögbundnum frídögum á almennum vinnumarkaði. Og nú er gert ráð fyrir að þeim fjölgi um einn. Þetta setur fyrrverandi borgarstjóri einnig spurningamerki við. „Þetta er vegferð sem við erum búin að vinna að á kjörtímabilinu og við í Framsókn erum tilbúin að styðja þetta í grunnatriðum en þessi lokunardagur hann situr í okkur vegna þess að það er skerðing á þjónustu við fjölskyldurnar í borginni,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og fyrrverandi borgarstjóri.Þá ítrekar Líf, að frekari aðgerðir séu í farvatninu er varða leikskóla. „Við verðum að gera eitthvað vegna þess að það er algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár,“ segir Líf. „Það verður meira að koma til og við erum með ýmislegt á teikniborðinu.“
Leikskólar Reykjavík Fjölskyldumál Börn og uppeldi Kjaramál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira