Telur Trump enn girnast Grænland Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2026 07:46 Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. AP/Michael Probst Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump.
Hótanir Trumps í garð Grænlendinga og Dana og beiting tolla gegn ríkjum í Evrópu sem stóðu með Dönum og Grænlendingum, auk annarra atriða, hafa komið verulega niður á samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu á undanförnum vikum og mánuðum. Eins og frægt er lét Trump af hótunum sínum um að taka Grænland með valdi, eftir að hann sagðist hafa gert einhvers konar samkomulag við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem átti að gefa Bandaríkjamönnum allt sem Trump sóttist eftir varðandi Grænland. Á öryggisráðstefnunni í gær sögðu bæði Frederiksen og Jens Frederik Nielsen, forseti heimastjórnarinnar á Grænlandi, að þrýstingur Bandaríkjamanna í garð Grænlendinga væri óásættanlegur. Í grein Guardian segir þó að Nielsen hafi tekið fram að skref hefðu verið tekin í rétta átt. Sjá einnig: Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Blaðamaður danska ríkisútvarpsins á Grænlandi sagði í gær að þeir Grænlendingar sem hún hefði rætt við hefðu í raun takmarkaðan áhuga á því sem færi fram í München. Þeir hefðu mun meiri áhuga á því hvað kæmi út úr beinum viðræðum milli Bandaríkjamanna annars vegar og Dana og Grænlendinga hins vegar. Fundu ekki fyrir ógn fyrr en Trump byrjaði að hóta þeim Ein af ástæðum þess að Trump segir mikilvægt að Bandaríkin eignist Grænland er ógnin sem eyríkinu stafar af Rússlandi og Kína og segir forsetinn að Evrópa geti ekki varið Grænland, jafnvel þó að Grænland sé aðili að Atlantshafsbandalaginu og að Bandaríkin yrðu því skuldbundin til að verja eyjuna. DR hefur eftir Nielsen að Grænlendingar hafi ekki fundið fyrir þessari meintu ógn frá Rússlandi og Kína. Fyrsta skipti sem þeir hafi fundið fyrir raunverulegri ógn hafi verið þegar bandamaður, það er að segja Bandaríkin, hótuðu að taka Grænland með valdi. At #MSC2026, 🇬🇱 Prime Minister Jens-Frederik Nielsen stated that this debate goes beyond Greenland, raising broader questions about how major powers engage with allies. pic.twitter.com/6K2SHR89Rd— Munich Security Conference (@MunSecConf) February 14, 2026 Bæði Nielsen og Frederiksen sögðu það jákvætt að verið væri að auka öryggi og viðbúnað NATO á norðurslóðum. Norðmenn ræddu Grænland við Rubio Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í München í gær. Þeir ræddu meðal annars um mikilvægi Grænlands þegar kemur að öryggi á norðurslóðum. Samkvæmt Rubio ræddu þeir einnig samvinnu hvað varðar sjaldgæfa málma og birgðakeðju. In my meeting with Norwegian Prime Minister @jonasgahrstore, we discussed Norway’s vital role in Arctic security and the strategic importance of Greenland. We look forward to partnering with Norway on supply chain security, including on critical minerals. pic.twitter.com/4NnmhOb4Ff— Secretary Marco Rubio (@SecRubio) February 14, 2026 Støre sagði norskum miðlum að fundurinn með Rubio hefði gengið vel.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Danmörk Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig. 14. febrúar 2026 07:56 „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 13. febrúar 2026 20:47 Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München. 13. febrúar 2026 09:10 Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands. 12. febrúar 2026 18:47 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig. 14. febrúar 2026 07:56
„Þá er Ísland kannski næsti biti“ Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 13. febrúar 2026 20:47
Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München. 13. febrúar 2026 09:10
Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands. 12. febrúar 2026 18:47