Sýnt virðingar- og skeytingarleysi gagnvart starfsfólki Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 20:20 Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt við Háskólann á Bifröst, og Margrét Jónsdóttir, rektor skólans. Manhattan Marketing/Bifröst „Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“
Þetta segir Ragnar Már Vilhjálmsson, aðjúkt í markaðsfræði við Háskólann á Bifröst, sem var ásamt öðrum sakaður um að vera ranglega skráður sem meðhöfundur að fræðilegri grein. Siðanefnd skólans hreinsaði hann og tvo aðra starfsmenn af öllum ásökunum í dag. Ragnar gerir athugasemd við það hversu langan tíma tók að fá botn í málið og bendir á að siðanefnd Háskólans í Belgrad, sem meðhöfundar hans starfi við, hafi komist að sömu niðurstöðu 19. desember síðastliðinn. Dýrt ferli Ragnar segir samstarfsfólk á Bifröst vera í áfalli vegna ásakananna en Margrét Jónsdóttir rektor og stjórnendur skólans hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í málinu. Ragnar gerir málið upp í færslu á Facebook-síðu sinni og segir að hann hafi starfað við Háskólann á Bifröst í rúmt 21 ár. „Að fá þessa áskorun frá samstarfsmönnum mínum eftir það líf sem ég hef lagt skólanum í gegnum þessa rúmlegu tvo áratugi er sorglegra en orð fá lýst og lýsir vel virðingar- og skeytingaleysi stjórnenda gagnvart mannauði sínum.“ Þessum hluta ferlisins hafi lokið í dag með úrskurði siðanefndar skólans. „Ég vissi alltaf að þetta yrði niðurstaðan á endanum en ferlið hefur verið langt. Og það hefur líka verið mjög dýrt, bæði andlega og fjárhagslega.“ Sannarlega tekið þátt í greinaskrifunum Hvað varðar fræðigreinina sem hann var sakaður um að hafa ekki tekið þátt í að skrifa segir Ragnar að hann hafi ásamt samstarfsmanni sínum Haraldi Daða Ragnarssyni skrifað rúmlega 35 prósent af texta greinarinnar og tekið þátt í skrifum þriggja erlendra meðhöfunda. „Ég og kollegi minn við Bifröst höfum á undanförnum árum verið í rannsóknarsamstarfi við erlenda kollega okkar í Slóvakíu og Serbíu þar sem við höfum rannsakað viðhorf nemenda í þessum þremur löndum til notkunar gervigreindar við nám og kennslu.“ Úr þeim rannsóknum hafi þeir skrifað fræðigreinar. Það sé af og frá að þeir hafi átt „ekkert vitsmunalegt framlag“ í grein sem kærð var til siðanefndar. „Þetta var meðal annars staðfest af siðanefnd Háskólans í Belgrad, þar sem okkar meðhöfundar voru dregnir fyrir siðanefnd síns skóla til að svara til saka um þessa grein, vegna fyrirspurnar stjórnenda á Bifröst sem tilkynntu meðhöfundum okkar um að við sætum undir ásökunum á Íslandi. Siðanefndin í Serbíu hreinsaði okkur af öllum ásökunum þann 19. desember. Sama dag fengu stjórnendur á Bifröst sömu staðfestingu frá Serbíu en samt var málið látið hanga hjá siðanefnd Háskólans á Bifröst í næstum því 50 daga til viðbótar, þegar löngu var orðið ljóst og staðfest að þessar ásakanir áttu ekki við nein rök að styðjast,“ skrifar Ragnar.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Skóla- og menntamál Háskólar Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira