Innlent

Slys á Miklu­braut: Bíll hafnaði á vegriði

Agnar Már Másson skrifar
Bíll hefur hafnað ofan á vegriði eftir umferðarslys á miklubraut.
Bíll hefur hafnað ofan á vegriði eftir umferðarslys á miklubraut. Vísir/Örvar

Viðbragðsaðilar eru með mikinn viðbúnað vegna bílslyss á Miklubraut í nágrenni við Rauðagerði í Reykjavík. Fjöldi slasaðra liggur ekki fyrir.

Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Útkallið barst á tólfta tímanum í kvöld.

Slökkvilið gat litlar upplýsingar veitt um málið aðrar en að viðbraðgsaðilar væru á leiðinni á vettvang slyssins, sem væri í nágrenni við Rauðagerði.

Bíll virðist hafa hafnað ofan á vegriði, að sögn sjónarvotts. 

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×